Hvernig finnst ykkur þetta? Persónulega vorkenni ég þeim.

Fór í krónuna á Bíldshöfða um daginn til þess að versla inn eins og gengur á öllum vel reknum heimilum.

Tilgangur ferðarinnar var að kaupa eitt og annað eins og bökunarvörur en þær er einfaldlega ekki hægt að kaupa í minni ágætu hverfisbúð (Kjarval)sökum verðlags og í raun eiginlega ekkert hægt að versla þar af sömu sökum.

En aftur að krónunni,sem var alveg prýðis verslun með býsna gott vöruval verð og frábæra þjónustu sem passar vel flestum.

Ég var mikið búinn að leita af sultuhleypir að öðru sem fylgir sultugerð á göngunum þar til ég bað einn vel merktan starfsmann að aðstoða mig,og viti menn hann barasta talaði eitthvað sem ég auðvitað skildi ekkert í,og í fyrstu hélt ég að þarna væri á ferðinni einhver ógæfumaður sem hefði fundið þessa líka fínu peysu svona vel merkta og væri í 10,000 fetum eftir að hafa rekið nefið ofaní eitthvað undarlegt.

Ég horfði vel á manninn og sá þá mér til mikillar undrunar að hann var „streit“ hvað þetta varðaði,en áfram hélt hann og ég auðvitað flaggaði minni fínu ensku en ekkert gerðist, aumingja maðurinn skildi ekki eitt aukatekið orð.

Eftir heilmikla leit að Íslenskum starfsmanni fann ég ásamt konu einni sem var í sömu vandræðum og ég þ.e.hvorugt okkar kunni tékknesku eða pólsku, starfsmann sem gat liðsinnt okkur báðum en þá var varan að vísu uppseld.

Þá er komið að því að fara á kassann og greiða fyrir það sem í körfuna var komið,Ó BOJ ekki tók betra við þar,aumingja stúlkan sem þar var vissi auðvitað ekkert hvað epli var og hvað þá sæt kartafla,hún var að fletta uppí bók og reina að bera saman ávextina og grænmetið sem ekki var strikamerkt.

Og haldið þið að þetta hafi verið svona „hviss pang“túr í búðina,ó nei ég beið í röð í 20mín og það tók hana heilar 10mín að afgreiða mig og mína hollustu,ég sárvorkenni þessu fólki það er uppfullt að þjónustulund en getur ekki nýtt sér hana vegna þess að þau skilja ekkert í íslensku og eða ensku,og svo er þeim er hent beit út í búðina og sagt að vinna .

Hvernig er það á þetta fólk ekki að læra okkar mál áður en þau eru látin vinna í svona þjónustu?

Og ef að þið stjórnarmenn hjá krónunni haldið að þetta sé ykkur til framdráttar þá skjátlast ykkur all hraparlega,það er algjör lámarks krafa okkar neitanda að fá þá þjónustu að starfsfólk sé skiljanlegt,ég hef enn ekki komið inn í þá verslun þar sem mállaus maður að afgreiða,eða fengið blindan leigubílstjóra.


Það hefur bæði kosti og galla að eldast.

Þessa sögu sagði mér ágætur gamall veiðifélagi eitt sinn við árbakkann norður í landi og hef ég fyrir satt að hann hafi lent í þessu sjálfur.

Hjónakornin Jón og Gunna voru komin af léttasta skeiði en voru mjög virk í kynlífinu eftir sem áður. Eitt sinn sem oftar voru þau upp í rúmi, létu vel hvort að öðru og stefndu á að eiga mjög góða stund saman. Þegar Gunna hvíslar munúðarfullt í eyra Jóns verður hún furðulostin þegar hann rýkur upp úr rúminu. Karlinn grípur haglabyssuna og æðir út. Þar stendur hann á sprellanum og miðar upp á þak. Hvern andskotann er karluglan að bardúsa núna hugsar Gunna ergileg. Hún æpir á hann og spyr hvern fjandann hann sé að gera. Jón æpti á móti: þú sagðir að það væri rjúpa á þakinu NEI, gargaði Gunna á móti: ÉG SPURÐI HVORT ÉG ÆTTI AÐ KRJÚPA EÐA VERA Á BAKINU!!

Prestar geta líka átt áhugamál.

Baldur prestur vaknar á sunnudagsmorgni og sólin skín. Hann ákveður
að í dag ætli hann að segjast vera veikur og hann komist ekki til messu.
Svo hann hringir í annan prest, tilkynnir veikindin, nær svo í
golfsettið sitt og læðupokast upp á golfvöll í þeirri von að enginn sjái
hann. Á vellinum er ekki nokkur maður svo ráðabrugg Baldurs prests
ætlar að ganga upp. Uppi í Himnaríki snýr Lykla-Pétur sér að Guði og
spyr: "Guð, ætlarðu að láta vígðan manninn komast upp með þetta?" Guð
horfir niður á Baldur prest þar sem hann slær teighöggið. Kúlan flýgur
420 metra í fallegum boga, skoppar einu sinni á flötinni og rennur svo
beina leið ofan í holuna! Kraftaverkahögg! Lykla Pétur lýtur
skilningsvana á Guð og spyr: ,,Hversvegna í ósköpunum léstu hann fara
holu í höggi?" Drottinn svarar: ,,Hverjum á hann að segja frá þessu?!"


Orkuveitan hvað er að gerast !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Þegar ungur eiginmaður kemur heim eitt kvöldið tekur konan á móti honum meðþví að hlaupa upp um háls honum og segja; Ástin ég er kominn einn mánuðframyfir. Ég er viss um að nú er ég ófrísk, heimilislæknirinn okkar  sagðiað hann gæti ekki fullvissað mig um fyrr en hann fengi niðurstöðu úrrannsókninni á morgun og við skyldum þegja yfir þessu þangað til. Að morgni næsta dags kom maður frá Orkuveitunni til þess að loka fyrirrafmagnið, þar sem ungu hjónin höfðu ekki greitt síðasta reikning. Hannhringdi dyrabjöllunni og þegar unga frúin kom til dyra sagði hann; "Þú ertkominn mánuð framyfir". "Hvernig í ósköpunum veist þú það?" spurði ungafrúin. "Nú það er allt svona skráð kyrfilega í tölvukerfi Orkuveitunnar" varsvarið. "Heyrðu, þetta sætti ég mig sko ekki við og ég ætla að tala viðmanninn minn í kvöld og hann mun örugglega hafa samband við ykkur á morgun"sagði unga frúin og skellti hurðinni. Þegar eiginmaðurinn kom heim fékk hann að heyra allt um persónunjósnirOrkuveitunnar og hann fór vitanlega öskuvondur á fund Alfreðs Þorsteinssonarmorguninn eftir. "Heyrðu Alfreð, þetta er nú algjörlega út í hött. Hvaðeiginlega í ósköpunum gengur að ykkur, þið eruð með það í skrám ykkar að viðséum kominn mánuð framyfir, hvern andskotann að kemur ykkur það við?!""Slakaðu nú á þetta er ekkert mál, borgaðu okkur bara og þá tökum við þettaúr skránni okkar."svaraði Alfreð."Borga ykkur?! Ert'ekki í lagi, nú ef ég hafna því, hvað þá?""Nú þá klippum við bara á og tökum þig úr sambandi.""Og hvað á þá konan mín þá að gera?""Nú hún verður þá bara að nota kerti" svaraði Alfreð.

Þessir verkfræðingar sko !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Hér kemur einn góður.. Jón verkfræðingur deyr og fer auðvitað upp til himna eins og allir verkfræðingar.Þegar þangað kemur leitar Pétur í nafnalistanum og segir svo:"Því miður Jón minn, þú ert ekki ekki á listanum. Þú verður að fara niður".--"En en, ég er verkfræðingur...""Já sorry, en þú ert ekki á listanum !".Þannig að Jón er sendur niður til helvítis.Mánuði síðar er Guð að fara yfir nafnalistana og sér að þau mistök hafa átt sér stað að Jón verkfræðingur hafi óvart verið sendur til helvítis.Hann bjallar í Satan og biður hann um að skila nú Jóni.Satan segir strax, "Ekki séns, þú færð Jón sko ekki aftur, þín mistök."Guð er ekki sáttur og segir,  "Láttu ekki svona, Jón er verkfræðingur, hann á heima á himnum með hinum og þú veist það".Þá varð Satan mikið niðri fyrir og sagði "Sko, áður en Jón kom var ógeðslega heitt hérna, það var hraunstraumur hér um allt og brennisteinsfnykur og viðbjóður. Jón breytti þessu öllu. Núna erum við komin með loftræstingu, brýr, vegakerfi, flóðvarnagarða og ég veit ekki hvað og hvað, allt hannað af honum. Þetta er orðið helvíti næs hérna hjá okkur. Það er ekki séns að þú fáir hann"."Sko Satan, þú lætur mig fá hann aftur, eða ég fer í mál við þig !""-Já er það, og hvar þykist þú ætla að fá lögfræðinga..." 

Frábær frétt fyrir okkur/sorglega seint fyrir suma.

Þetta er svo sannanlega ágnæjuleg frétt og ekki seinna vænna að rusla þessu af.

Kristján L. Möller samgönguráðherra á svo sannanlega hrós skilið fyrir þetta.


mbl.is Suðurlandsvegur verður tvöfaldaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður heyrir margt í búðinni

Maður heyrir margt í búðinni eins og þetta um daginn:

Snarvitlaus maður með nýsteikt lambalæri í hendinni vindur sér inn í Kaupfélagið og beint að kjötborðinu og segir við unga
afgreiðslumanninn:
ÉG VAR AÐ STEIKJA ÞETTA LÆRI SEM ÉG KEYPTI HÉR Í DAG OG ÞAÐ VARÐ EKKI AÐ NEINU, ÉG ER MEÐ MATARBOÐ OG ÞETTA DUGAR EKKI : !( ÞRUMAÐI HANN ÚT ÚR SÉR)
Afgreiðslumaðurinn ungi horfði skelkaður á þann reiða og sagði svo:
Jáá , veistu hvað ? ég keypti mér lopapeysu um daginn, svo varð hún skítug, ég henti henni í þvottavél og síðan í þurrkara og hún bara hvarf !!
...bætti svo við , heldur þú að þetta sé af sömu rollunni ??


Ótrúleg hræsni,og svo á að vera gott að búa í Kópavogi.

Þetta er auðvitað alveg með ólíkindum,að valta svona yfir fólkið og sýnir berst hversu mikil hræsni er í gangi hjá ráðamönnum ,lýsandi dæmi fyrir þann flokk sem þarna ræður.

En ég bjó í Kópavogi í 27ár og ÞÁ VAR gott að búa þarna,en hugsið ykkur skammsýnina í yfirvöldum.

Þeir selja ykkur fokdýrar "sjávarlóðir" með útsýni yfir voginn og sýn alla leið upp á snæfellsnes,jökulinn sem skartar sýnu fegursta á heiðskýrri sumarnótt og allt það.

EN !!!!! Eitt sem ekki ekki var með í kaupunum og það var það að yfirvöld mættu loka fyrir þessa sýn nokkrum árum og í sumum tilfellum áratugum seinna.

Góð kaup?

Þar sem ég bjó út á nesi beit á móti sjoppunni með gríðarlega flott útsýni, mundi ég ekki undir nokkrum kringumstæðum sammþ að byggt yrði fyrir þetta útsýni,hvernig er þetta hægt?

Víðast hvar eru háhýsin byggð sem fjærst ströndum til þess að geta einmitt selt sjáfarlóðir á mikla peninga háu húsin þá sem sagt land megin

Vesturbæingar þið eruð að láta yfirvöld taka ykkur í skrauf þurft rassgatið fyrir framan alþjóð,finnst ykkur það gott?????


mbl.is Samþykkt að fjölga íbúðum á Kársnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru menn 1/2vitar ???????

Hvernig í óspöpunum dettur mönnum í hug að þetta sé framkvæmanlegt þarna,það yrði nú þokkalega þegar(ekki ef) það fer að gjósa þarna aftur og göngin fyllast af glóandi hrauni.

Það held ég að yrði nú ljóti steingerfingurinn sem fyndist þarna 1000árum seinna sjálfur Árni Johnsen.

Svo er nú bakkafjöru ævintýrið eitt þar voru þeir nú flottir saman bakkabræðurnir Sturla Böðvars og Árni Johnsen.

Eru menn algjörlega búnir að gleyma hvernig "tíkarvindur"Víkartindur fór þarna aðeins austar um árið,atlantshafið tók hann á met tíma og gerði hann eins og niðursuðudós.

Og svo halda menn að það sé hægt að vera með höfn í bakkafjöru þvílíkir og aðrir eins 1/2vitar.

Ætli mönnum væri ekki nær að láta smíða nýjan Herjólf sem færi þessa vegalengd frá eyjum til Þorlákshafnar á skemmri tíma og láta sér það nægja,það er engin neyddur til að búa í Vestmannaeyjum svo mikið er víst.


mbl.is „Álitamál hvort göng til Vestmannaeyja séu réttlætanleg"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

3 vikur á Íslandi

Jæja þá er komið að því að vinna aftur eftir 3vikna frí á landinu góða.

Við hjónin erum búinn að aka um landið með "hreisið" okkar u.þ.b. 2500km á þessum tíma og höfum barasta ekki fengið nokkurn frið fyrir sólinni !!!!!!

Alveg er þetta búið að vera dásamlegur tími og það er mjög gaman að sjá hversu mikill metnaður er lagður í tjaldsvæðin vel flest,nema ef vera skildi á (Þórunnarstræti)Akureyri og Borgarnesi þvílíkt og annað eins metnaðarleysi hef ég hvergi séð.

En suðurlandið er með gríðarlega mikið að fallegum og vel búnum svæðum og topp þjónusta þar einnig,á klaustri er þó fallegast af þeim stöðum sem við fórum á.Hellishólar bjóða uppá mikið og gott svæði með mikilli þjónustu,Laugarland í Holtum einnig.

En á miðju ferðalaginu ráfuðum við inn hjá þeim í Víkurverki og fórum ekki þaðan fyrr en nýtt hjólhýsi var komið aftan í bílinn,og auðvitað alveg óvart.Whistling 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband