Eru menn 1/2vitar ???????

Hvernig í óspöpunum dettur mönnum í hug að þetta sé framkvæmanlegt þarna,það yrði nú þokkalega þegar(ekki ef) það fer að gjósa þarna aftur og göngin fyllast af glóandi hrauni.

Það held ég að yrði nú ljóti steingerfingurinn sem fyndist þarna 1000árum seinna sjálfur Árni Johnsen.

Svo er nú bakkafjöru ævintýrið eitt þar voru þeir nú flottir saman bakkabræðurnir Sturla Böðvars og Árni Johnsen.

Eru menn algjörlega búnir að gleyma hvernig "tíkarvindur"Víkartindur fór þarna aðeins austar um árið,atlantshafið tók hann á met tíma og gerði hann eins og niðursuðudós.

Og svo halda menn að það sé hægt að vera með höfn í bakkafjöru þvílíkir og aðrir eins 1/2vitar.

Ætli mönnum væri ekki nær að láta smíða nýjan Herjólf sem færi þessa vegalengd frá eyjum til Þorlákshafnar á skemmri tíma og láta sér það nægja,það er engin neyddur til að búa í Vestmannaeyjum svo mikið er víst.


mbl.is „Álitamál hvort göng til Vestmannaeyja séu réttlætanleg"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Álítur þú okkur 1/2 vita hér í Vestmannaeyjum, eða hvað? Þú og aðrir virðast  fara úr límingunum þegar fram koma niðurstöður, sem beðið var um .  Nú er þörf á ábyrgri umræðu um máið, en ekki upphrópanir og sleggjudómar.  

Þorkell Sigurjónsson, 24.7.2007 kl. 18:44

2 Smámynd: Sigurður Oddur Friðriksson

Ágætt að vita það allavega að maður á aldrei eftir að kaupa bíl hjá bílabúð benna. Og þessi skrif vekja líka upp spurningar hver er 1/2viti

Sigurður Oddur Friðriksson, 24.7.2007 kl. 19:08

3 Smámynd: Auðun Gíslason

Margt skynsamlegra hægt að gera fyrir 40-80 milljarða en að grafa göng.  Má nefna að fangelsismálin eru ólestri.  Staðið hefur til í áratugi að byggja almennlegt tugthús, en ekkert gerst. Og á meðan ganga þjófarnir lausir...

Auðun Gíslason, 24.7.2007 kl. 19:34

4 identicon

Ótrúlegt að maður með svona mikla sérþekkingu á sviði jarðfræði, gangnagerðar og gerð hafnarmannvirkja ásamt því að geta á einu bretti greint alla sem að þessum málum koma sem hálfvita sé látinn selja bíla í 30 ár. 

Jarl Sigurgeirsson (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 21:39

5 Smámynd: Grétar Ómarsson

Talandi um hálfvita !! til hamingju Vignir þú hefur hent frá þér mögulegum viðskiptum Eyjamanna við bílabúð Benna með þessu fáránlega útspili þínu

Ég sé að þú ert búinn að gleyma því að Víkartindur var bútaður niður og seldur í brotajárn,  talandi um að hafið hafði gert Víkartind að niðursuðudós er bara þvættingur.

Svo sé ég að þú ert líka jarðfræðingur? veist víst meira um þau mál en sérfræðingar á því sviði.

Bakkafjara virðist vera þín sérgrein, þó ég efist um að þú hafir komið nálægt fjörunni. 

Spurning um að þú reddir ekki bara vandamálum Eyjanna eftir að yfirmenn þínir hjá bílabúð Benna verða búnir að henda þér út fyrir svona sleggjudóma á heilt bæjarfélag.  

Þú virðist vera með allt á tæru, til hamingju með það.    

Grétar Ómarsson, 24.7.2007 kl. 21:49

6 identicon

Ég verð nú að segja að mér finnst þessi blogfærsla Vignirs ansi ómálefnaleg. Sjálfur tel ég göng ekki skynsamlegan kost í dag þó svo að hann væri að sjálfsögðu til gríðarlegra bóta fyrir Eyjamenn. Auðvitað þarf meiri rannsóknir á svæðinu eins og verkfræðistofan bendir m.a. í skýrslunni, til að meta svæðið en þegar maður horfir á gossöguna þá finnst manni þetta ekki spennandi svæði fyrir göng. Nú varðandi Bakkafjöruhöfn þá tel ég það spennandi kost að stefna að, en að sjálfsögðu fylgja henni annmarkar.  Ég tel nú samt að þó svo að upp komi öðru hvoru aðstæður að ófært sé í land þá verði um gríðarlega samgöngubót að ræða fyrir Eyjamenn miðað við það sem er í dag.

Birkir (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 22:58

7 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Heimsendaspár um göngin

Áform um Hvalfjarðargöng settu eðlilega mark sitt á þjóðmálaumræðuna þegar við blasti að ráðist yrði í framkvæmdir. Margir lýstu ánægju með að göng undir Hvalfjörð væru loksins í sjónmáli og hlökkuðu til að losna við að aka fyrir fjörð í öllum veðrum. Aðrir voru neikvæðir, höfðu jafnvel uppi gífuryrtar heimsendaspár. Nokkur dæmi skulu tilgreind úr safni tilvitnana í skrif og ummæli andstæðinga Hvalfjarðarganga.

Friðrik Hansen Guðmundsson í samtali við fréttamann Útvarps 1. febrúar 1996, eftir fund Verkfræðingafélagsins um Hvalfjarðargöng:

"Það liggur bara alveg fyrir eftir þennan fund að mínu mati að menn vita hreint og klárt ekkert hvað þeir eru að fara út í. Það verður ekki ljóst fyrr en menn fara að grafa og bora og sprengja þarna niðri. Þarna eru misgengissprungur, berggangar, þetta er allt saman vatnsleiðandi berglög sem þarna eru á ferðinni og ef menn lenda í þessum göngum þegar það er verið að sprengja niður á við, þar verða menn að vinna í vatni og sprengja í vatni með vatnið alltaf á sér og ef menn lenda í miklum lekavandamálum eins og í Vestfjarðagöngum, sem getur vel komið þarna upp, að þá sér maður fram á að menn gefist bara hreinlega upp."

Friðrik Hansen Guðmundsson í fréttum Stöðvar tvö 1. febrúar 1996:

"Það síðasta sem við þurfum á að halda sem stöndum í útflutningi á verkfræðiþekkingu er stórbrotið klúður á heimavelli og ef illa tekst upp í Hvalfjarðargöngunum þá mun það varpa skugga ótrúverðugleika yfir alla íslensku verkfræðistéttina."

Friðrik Hansen Guðmundsson í fréttum Sjónvarps 1. febrúar 1996:

"Ég er að benda á það að eftir þeirri reynslu sem menn hafa erlendis frá þá geta menn lent í hverju sem er þarna ofan í jarðgöngum. Menn eiga þar á hættu að lenda í miklum lekavandamálum eins og menn lentu í í Vestfjarðagöngum. Menn eiga þar á hættu að lenda í vandamálum vegna jarðskjálfta ef þarna á sér stað jarðskjálfti. Það er alveg óþekkt hvað gerist í slíkum göngum sem þessum í jarðskjálfta í þessu bergi sem við höfum hér. Við erum að horfa upp á möguleika á verulegum stórslysum ofan í þessum jarðgöngum ef að þarna á sér stað árekstur ofan í þessum djúpu jarðgöngum. Þarna getur átt sér stað bruni, þarna getur átt sér stað slys og bruni ofan í þessum jarðgöngum að þá geta menn lent þar í gríðarlegum slysum og eins og málin blasa við og standa við sérstakletga eftir þennan fund hér í dag þá hefur ekkert komið fram sem að annað en að styrkja mig í þeirri trú að þarna geta menn lent í stórbrotnu klúðri sem að bitnar síðan á okkur öllum sem búum í þessu landi."

Gunnlaugur Þórðarson, lögmaður, í Morgublaðsgrein 20. febrúar 1996:

"Gerð ganganna mun án efa kosta mannslíf."

"Mér er ekki kunnugt um neinn íslenskan verkfræðing, tæknifræðing né arkitekt, en þeir vera að standa ábyrgir fyrir gerðum sínum, sem fæst til að taka ábyrgð á eða jafnvel mæla með jarðgöngunum."

Gunnlaugur Þórðarson, lögmaður, í Morgunblaðsgrein 29. febrúar 1996:

"Í þessu máli, sem svo mörgum öðrum milli íslensku þjóðarinnar og norskra stjórnvalda, gildir gamla máltækið "frændur eru frændum verstir". Það er dapurlegt að hugsa til þess að það mun enn, á sinn hátt, rætast í jarðgöngunum undir Hvalfirði."

Magnús Sigurðsson skrifar í DV 23. febrúar 1996:

"Þeir sem ég hef heyrt ræða göngin telja þau beinlínis óðs manns æði og það skipti verulegu máli að þau verði ekki að veruleika."

Ágúst Sigurðsson skrifar í DV 29. febrúar 1996:

"Hér er rennt blint í sjóinn, í þeirra orða fyllstu merkingu, með gerð ganganna og þau eiga því miður eftir að verða stór og mikil martröð allrar þjóðarinnar á komandi árum. Mótmæli verða því að koma fram."

Jónas Kristjánsson í forystugrein í DV 27. febrúar 1996:

"Til marks um þýlyndi Íslendinga má hafa, að engin samtök grípa til varna gegn Hvalfjarðargöngum. Fólk tuðar gegn göngunum í hornum sínum, en notar ekki samtakamátt til að koma í veg fyrir, að göngin verði að einni helstu martröð þjóðarbúsins á næstu árum."

"Ef Íslendingar væru ekki þýlyndari en aðrar þjóðir, létu þeir ekki rugl af þessu tagi yfir sig ganga hljóðalaust. Stofnuð væru samtök til að gæta hagsmuna skattgreiðenda og vegfarenda til þess að berjast gegn því, að vandræðin yrðu meiri en þau eru þegar orðin."

"Stofna þarf virk almannasamtök til að vernda viðhald og framkvæmdir við veginn fyrir botn Hvalfjarðar og hindra frekari ábyrgð skattgreiðenda á göngunum."

Ólafur Sigurgeirsson á Þaravöllum í samtali við Tímann 24. febrúar 1996:

"Þessi göng eru eitt mesta umhverfisslys landsins og stórskaði fyrir okkur hér og alla landsmenn. Göngin eiga eftir að verða dragbítur á þjóðfélaginu í áratugi og komast sennilega aldrei í gagnið."

Gunnlaugur Þórðarson snýr við blaðinu

Gunnlaugur Þórðarson, hæstaréttarlögmaður, var í hópi þeirra sem hvað harkalegast gagnrýndu áform um Hvalfjarðargöng á opinberum vettvangi og vöruðu við að "anað yrði út í" þessar framkvæmdir. Hann skrifaði greinar í Morgunblaðið, 20. febrúar 1996 undir fyrirsögninni "Þjóðardoði" og 29. febrúar 1996 undir fyrirsögninni "Hvalfjarðargöngin, Smugan og Mozart".

Gunnlaugi snerist hugur svo um munaði og hann vitnaði síðar í tvígang í Morgunblaðinu um ágæti Hvalfjarðarganga. Þann 25. október 1997 skrifaði hann grein undir fyrirsögninni "Að skjátlast er mannlegt" og rakti hvernig undirmeðvitund sín hefði rumskað þegar fréttir bárust um glæsilegan árangur við gangagerðina:

"Gat það verið, að baráttugleðin í fyrrgreindum blaðagreinum hefði leitt mig á villigötur? Og lét þetta mig ekki í friði. Ég varð að skoða verkið með eigin augum."

Gunnlaugur fékk síðan leyfi til að skoða Hvalfjarðargöng í fylgd Hermanns Sigurðssonar, verkfræðings og þáverandi staðarstjóra Fossvirkis í Hvalfirði. Eftir þá heimsókn skrifaði Gunnlaugur Þórðarson m.a.:

"Heimsóknin í göngin sannfærði mig um , að þar væri unnið stórkostlegt mannvirki, sem yrði þjóðinni lyftistöng og væri vottur þess stórhugar, sem ríkja ætti með íslensku þjóðinni."

"Öryggistilfinningin þarna neðanjarðar var dásamleg. Manndómurinn í verkinu er þeim, sem að því standa, til sóma. Í samræmi við áðurnefnt spakmæli hlýt ég að leiðrétta orð mín og hlakka til að fara um Hvalfjarðargöngin fullfrágengin norður á Húsavík að rúmu ári. Til hamingju Ístak og Fossvirki!"

tekið af spolur.is

Pálmi Freyr Óskarsson, 25.7.2007 kl. 05:32

8 Smámynd: Vignir Arnarson

Jæja kæru eyja menn þið eruð samir við ykkur og fljótir til svars,en ég er voðalega hræddur um að þið séuð að misskilja þennan pistil minn all hrapalega,það er auðvitað EKKI verið að drulla yfir ykkur,slíkt mundi ég ekki gera enda á ég sjálfur mínar ættir að rekja til ykkar.

Hitt er svo annað mál,að það er hugmyndafræðin á bak við svona hluti sem er okkar þjóðarbúi hvað hættulegastar,og þess vegna eru það ráðamenn sem verið er að hnýta í en ekki þið.

Skemmst er að minnast Héðinsfjarðargangna.

Vignir Arnarson, 25.7.2007 kl. 11:18

9 identicon

Sammála frænda mínum.....enda topp náungi!!

Ásgeir Örn (IP-tala skráð) 29.7.2007 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband