Veiðisögur,nú fer hver að verða síðastur að seiga þær................................

Já nú fer hver að verða síðastur að seiga þær og þess vegna ætla ég að seiga ykkur smá sögu síðan um síðustu helgi.

Við fórum félagarnir ég og Helgi Guðbrands "gæt" á föstudaginn og veiddum í ytri-rangá eftir hádegi í þvílíku andskotans regni að annað eins hefur barasta ekki verið fundið upp og að þetta skuli allt hafa komið úr sömu skýjunum jæja hvað um það

Settum í eina 10 laxa á svæði 7,en komið svarta myrkur kl19,00 og máttum veiða til 20,00- svo þetta var nú ekki frýnilegt hættum bara þá og fórum austur á Hvolsvöll á hótelið þar og fengum gistingu ásamt dýrindið kvöldverð.

Þar vorum við búnir að mæla okkur mót við mömmu og pabba því til stóð að veiða saman laugardag og sunnudag í eystri-rangá þessa 2daga og var nú mikið rætt um það hvar ætti að vera undir og hvar væri best að byrja eins og gengur í góðum veiðitúr.

Laugardagurinn var góður,verður gengið niður og nokkuð bjart,settum í einhverja 19 fiska og lönduðum einum 8 þann daginn,og mamma setti í sinn maríulax eftir hádegi sem var mjög gaman fyrir alla en við gleymdum að láta hana naga uggann af ææ.

Sunnudagurinn var frábær mikið að fiski og þegar þarna var komið vorum við farnir að taka það fast á fisknum með von um að hann losnaði af sjálfur og gekk það bara nokkuð vel,( enda dauður fiskur vandamál)

Þegar upp var staðið tókum við með okkur heim 19laxa og vorum þá búnir að setja í u.þ.b.40 fiska.Frábærir dagar þarna í veiði.


Þessi er alveg hundgóður

Sigríður nunna dó og fyrir misskilning lenti í neðra
 
Hún hringdi í Pétur og sagð honum frá því hvað hefði gerst og Pétur sagðist mundi kippa þessu í liðinn hið snarasta.
Dagur leið og ekkert breyttist svo Sigríður hringir aftur í Pétur:
 
"Sæll Lykla Pétur, þetta er Sigríður nunna. Nú hefur liðið dagur og ekkert breyst. Það er allt mjög skrítið hér. Mér þætti vænt um ef þú gætir hraðað þessu"
"Já afsakaðu Sigríður mín. Það hefur verið svo mikið að gera að ég hef ekki komist í þetta. Kíki strax á það"
 
Nóttin líður og enn bólar ekkert á breytingum svo Sigríður hringir aftur í Pétur:
 
"Sæll Lykla Pétur. Þetta var hræðileg nótt hér í neðra og og mér sýnist það eigi eftir að verða hræðilegra. Í kvöld verður kynsvall hér í neðra og þú verður að bjarga mér upp til himna sem fyrst"
"Fyrirgefðu mér Sigríður. Ég því miður steingleymdi þessu en skal redda þessu strax"
 
Önnu nótt leið og Sigríður nunna hringir aftur:
 
"Sæll Pési, Sigga hérna. Gleymd'essu!"

Ekki pæla of mikið á listasafninu í Glasgow.....................

Íslensk hjón röltu inn á á málverkasýningu í Nútímalistasafninu í

Glasgow. Þau staðnæmdust við eitt málverkanna sem þau botnuðu ekkert í.

Verkið sýndi 3 kolsvarta og kviknakta karlmenn sitjandi á bekk í

almenningsgarði. Það sem vakti mesta undrun þeirra var að svarti maðurinn í

miðið var með skærbleikt tippi en hin tvö voru svört.

Safnvörður veitti hjónunum athygli og gerði sér grein fyrir því að þau voru

að velta fyrir sér merkingu verksins. Hann hélt nærri korters-fyrirlestur um

hvernig verkið endurspeglaði ofuráherslu á hinn kynferðislega þátt í lífi og

umhverfi svarta kynstofnsins í hvítu samfélagi. Og bætti því við að ,,sá

bleiki" væri jafnframt vísbending um sérstöðu hommans á meðal karlmanna.

Þegar safnvörðurinn hafði lokið tölunni og snúið sér að öðum sýningargestum

gaf sig skoskur maður á tal við hjónin og spurði hvort þau vildu vita hvað þetta verk táknaði?

Þau spurðu hvers vegna hann ætti að geta skýrt það betur en safnvörðurinn?

Vegna þess að ég er höfundur verksins", sagði hann. Í raun og veru,

eru þetta ekki svertingjar, þetta eru einfaldlega 3 skoskir kolanámumenn.

Eini munurinn á þeim er sá að þessi í miðjunni skrapp heim í matartímanum


Erum við virkilega svona? Því miður já,þá erum við einmitt svona,en við hin vitum það bara ekki.

Þessa litlu og svo sannanlega skemmtilega sögu fékk ég frá mínum kæra bróðir og verð að láta hana flakka hér fyrir ykkur.Whistling 

 

Lítil dæmisaga

Íslenskt og japanskt fyrirtæki ákváðu að keppa í róðri á áttæringi.
Liðsmenn frá báðum fyrirtækjum æfðu stíft og voru í toppformi þegar að sjálfri keppninni kom. Japanirnir urðu 1 km á undan íslenska liðinu.

Eftir útreiðina var mórallinn að sjálfsögðu heldur slæmur í íslenska fyrirtækinu og yfirstjórnin ákvað að fyrirtækið yrði að vinna keppnina að ári. Var settur á fót vinnuhópur til að skoða vandamálið.

Eftir heilmiklar pælingar komst vinnuhópurinn að því að Japanirnir létu 7 menn róa en einn stýra. Í íslenska liðinu var það einn sem réri og sjö sem stjórnuðu. Vegna þessarar miklu krísu afréð yfirstjórn íslenska fyrirtækisins að fá ráðgjafarfyrirtæki til að kanna strúktúr íslenska liðsins og gera nýtt skipurit ef á þyrfti að halda.

Eftir margra mánaða vinnu komust stjórnunarfræðingarnir að því að í íslenska bátnum væru það of margir sem stjórnuðu en of fáir sem réru. Með hliðsjón af skýrslu sérfræðinganna var strax ráðist í skipulagsbreytingar. Í stað þess að hafa sjö stýrimenn, einn áramann voru nú hafði fjórir stýrimenn, tveir yfirstýrimenn, einn leiðtogi stýrimanna og einn áramaður. Að auki var áramaðurinn "motiveraður" samkvæmt meginreglunni: "Að breikka starfssvið starfsmanna og veita þeim meiri ábyrgð".

Næstu keppni unnu Japanirnir með 2 km forskoti.

Íslenska fyrirtækið rak að sjálfsögðu áramanninn með tilliti til lélegrar frammistöðu, en greiddi bónus til stjórnarinnar vegna þeirrar miklu vinnu sem hún hafði innt af hendi.


Vegir guðs eru svo sannanlega óransakanlegir eins og þessi saga sannar !!!!!!!!!!!!!

Þrír synir afar guðhræddrar móður fóru að heiman til að spreyta sig á lífinu.
Allir áttu þeir miklu láni að fagna og græddu peninga í stórum fúlgum.
Að mörgum árum liðnum hittust þeir og ræddu meðal annars um gjafirnar
sem þeir höfðu sent aldraðri móður sinni.

„Ég reisti henni mömmu myndarlegt hús," sagði sá fyrsti.

„Ég sendi henni eitt stykki Mercedes Benz með bílstjóra," sagði annar.

„Ég gerði enn betur," sagði sá þriðji. „Þið munið hvað mamma hafði mikla unun
af að lesa Biblíuna og að hún er farin að missa sjón.
Þess vegna sendi ég henni stóran, brúnan páfagauk sem kann hana alla utan að.
Það tók tuttugu presta tólf ár að kenna páfagauknum þetta.
Verkefnið kostaði milljón dollara á ári, en það var þess virði.
Mamma þarf ekki annað en að nefna rit, kafla og vers
og þá fer páfagaukurinn með textann."

Skömmu síðar sendi móðirin sonum sínum þakkarbréf.

Til fyrsta sonarins skrifaði hún:
„Kæri sonur! Húsið sem þú byggðir er risastórt.
Ég bý aðeins í einu herbergjanna en þarf að þrífa allt húsið."

Sonur númer tvö fékk eftirfarandi bréf:
„Elskaði sonur! Ég er orðin alltof gömul til að ferðast.
Ég er alltaf heima og nota Bensinn aldrei. Bílstjórinn er óttalegur dóni."

Þriðja syninum sendi móðirin þessi skilaboð:
„Yndislega afkvæmi! Þú varst eini sonurinn sem gerðir þér grein fyrir hvernig ætti að gleðja hana móður þína
.
Kjúklingurinn var hreinasta hnossgæti!"

ÞETTA ER EKKI HÆGT.EKKI SÉNS.EKKI MÖGULEIKI.EKKI....................................

NEI NEI EKKI SÉNS,ÞETTA ER EINFALDLEGA EKKI HÆGT SAMAN HVERSU MIKILL 1/2VITI ER AÐ FLJÚGA,ÞAÐ ERU NEFLINLEGA ÁKVEÐIN TÆKI SEM ÞÚ VERÐUR AÐ FARA EFTIR ÁSAMT FLUGPLANI SEM UMSJÓN ÆTTI AÐ FYLGJAST MEÐ,EÐA HVAÐ.
mbl.is Lenti næstum því á Akureyri í stað Ísafjarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæsir og veiðimenn.

Ég fór á fætur kl 03,00 á föstudagsmorguninn,ekki til þess að verða ekki of seinn í vinnuna nei nei,heldur til að aka uppí hrepp og kúra þar ofan í skurði,já einmitt ofan í skurði í -3c kulda og 11m/sek,og reyna að draga björg í bú.

Þetta hljómar nú eiginlega frekar klént en auðvitað þarf ég ekkert að draga Björg í mitt bú,þar er kjarnorkukonan Dagný fyrir.  InLove

Haglabyssa,og svo vara haglabyssan og riffilinn(243cal) nesti(skyr)fatnaður (of langt að telja upp) skot,,,ææææææ  nóg til í riffilinn,en haglaskot 16 stk hvað var ég að hugsa,jæja miði er möguleiki (það eyðist sem af er tekið)svo ég fór af stað með miklar væntingar að vanda,enda erum við Haukur ekki vanir því að koma tómhentir úr veiðitúrum ó nei það er nú frekar að við þurfum að fá lánaðar snúrurnar hjá nágrönnum til að hengja fenginn á

Haukur vinur minn klikkaði auðvitað ekki á svona smámunum enda flugstjóri og vanur að fara yfir tékklistann áður en lagt er af stað.

En allavega þá hljómar þetta frekar heimskulegt þegar ég sest niður til að skrifa um þetta,útí skurð í roki og frosti og bíða þar í 6-8klst hírast í kulda og vosbúð og stundum engin veiði,en ég skaut nú samt 5gæsir af þeim 6 sem komu í túnið og er nú frekar stoltur með þetta.

Svo getur maður farið inní kaupfélag og þar er mikill og góður hiti og keypt stykkið á xxxx kr og meira seiga sofið út. Þvílíkt rugl maður  eða hvað?


Á að leyfa konum að keyra bíla svona yfirleitt..??


Þegar ég var á leiðinni upp Ártúnsbrekkuna í morgun leit ég til
hliðar og þar var kona á splunkunýjum BMW.

Hún var á svona 120 km hraða með andlitið upp í baksýnisspeglinum og var á
fullu að sminka sig með
meikup-græjurnar í sitt hvorri hendi og annan olbogan á stýrinu.
Ég leit fram á veginn eitt augnablik og næst þegar ég leit á hana var
bíllinn hennar á leiðinni yfir á mína akrein

og samt hélt hún áfram að mála sig eins og ekkert væri sjálfsagðara.
Mér brá svo mikið að ég missti ferðarakvélina mína á roastbeefsamlokuna sem
ég hélt á í vinstri hendinni.

Í panikkinu við að afstýra árekstri við konuhelvítið og ná stjórn á bílnum
sem ég stýrði með hnjánum, datt
gemsinn minn úr hálsgrófinni og ofan í kaffibollann sem ég var með á milli
fótanna.
Það varð til þess að brennheitt kaffið sullaðist á Orminn Langa og tvíburana
tvo.

Ég rak upp öskur og missti við það sígarettuna úr munninum og brenndi hún
stórt gat á sparijakkan

og ég missti af mikilvægu símtali!



Hvað er að þessum helv........ kellingum?

Ökumaður lést á suðurlandsvegi,á þetta engan endi að taka?

Hvar og hvenær á þessari martröð að ljúka hjá okkur?

Ég spyr hæstvirtan ráðherra Kristján Möller.

Hversvegna ekki að leifa aðilum eins og Sjóvá og fl að koma með sitt teymi og byrja á þessu verki sýna okkur í verki að viljinn sé virkilega að koma þessu verki í framkvæmd,svona verk á ekki að þurfa að fara í umhverfismat einfaldlega vegna þess að það tefur málið um 1-2 ár og það er algjörlega óásættanlegt.

Umhverfissinnar geta á engan hátt sett sig uppá móti þessari framkvæmd,þeir hinir sömu eru þá ekki alveg heilir,þetta er þjóðfélagslega jákvætt svo ekki´sé talað um þau mannslíf sem í húfi eru.

Af stað með verkið í einum hvelli einka framkvæmd eða ekki.

Vegagerðin er hvort eð er löngu útbrunnin stofnum fyrir blíhantsnagara og eiginhagsmuna seggi eins og nýleg dæmi sanna.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suðurlandsvegi

Banaslys varð á Suðurlandsvegi í Ölfusi á sjöunda tímanum í kvöld. Fólksbifreið á austurleið lenti framan á vörubifreið sem kom á móti. Ökumaður fólksbílsins var einn á ferð og er talið að hanni hafi látist samstundis. Ökumaður vörubílsins var fluttur á slysadeild en talið var að hann hefði sloppið með minniháttar meiðsl.


En ekki hvað

Það hlýtur að vera þjóðfélagsleg skilda hvers manns að fara eftir svona beiðnum frá sjálfum framleiðanda vélana.

Ekki vildi ég vera inní svona röri með bilaðan hjólabúnað svo mikið er víst þetta er ótrúlegt.

Flugfélag Íslands á tvær vélar af gerðinni Dash 8, sem flugvélaframleiðandinn Bombardier hefur óskað eftir að verði kyrrsettar. Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, segir að þær Dash 8 vélar sem flugfélagið á séu af annarri gerð en þær vélar sem lent hafa í óhöppum undanfarið, lendingarbúnaður sé til að mynda öðruvísi. Þess vegna segir Árni að ekki sé ástæða til að kyrrsetja íslensku vélarnar.


mbl.is Íslenskar Dash 8 vélar ekki kyrrsettar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband