15.10.2007 | 16:00
Sýknaður af ákæru um líkamsárás en hann var grunaður um brot gagnvart þrettán ára stúlku
Er okkar réttar kerfi algjörlega ónýtt?
Ég læt hérna fréttina koma ykkur til glöggvunar og segið mér svo hvað ykkur finnst um þetta.
Rúmlega tvítugur karlmaður, sem á síðasta ári var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sýknaður af ákæru um líkamsárás gagnvart ungri stúlku. Í umsögn dómara segir að honum sé ekki gerð sérstök refsing í málinu þar sem tekið sé tillit til þess að hann hafði fengið þriggja ára fangelsisdóm fyrir nauðgun skömmu áður og ef málin tvö hefðu verið tekin fyrir á sama tíma þá hefði hann ekki hlotið sérstakan dóm fyrir líkamsárásina.
Maðurinn var í desember í fyrra úrskurðaður í gæsluvarðhald í nokkra daga en hann var grunaður um brot gagnvart þrettán ára stúlku. Aðeins nokkrir dagar voru liðnir frá því að maðurinn var dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að þröngva fjórtán ára stúlku til samræðis við sig í september árið 2005. Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóm nú í sumar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.10.2007 | 15:52
ÞETTA MINNI OKKUR ENN OG AFTUR Á ÞÖRFINNI Á TVÖFÖLDUN VEGARINS.
ÞESSI 2 ÓHÖPP SEM URÐU NÚ Í MORGUN MINNA OKKUR ENN OG AFTUR Á ÞÁ GRÍÐARLEGU ÞÖRF SEM ER Á ÞVÍ AÐ HRAÐA FRAMKVÆMDUM VIÐ AÐ TVÖFALDA SUÐURLANDAVEGINN.
ÉG VAR STADDUR ÞARNA SJÁLFUR EINS OG AÐRA MORGNA OG ÞAÐ SÝNDI SIG AÐ 2+1 VEGUR EÐ ALGJÖRLEGA ÚT AÐ KORTINU LÖGREGLAN ÁTT ÞARNA Í STÖKUST VANDRÆÐUM MEÐ AÐ KOMAST HJÁ BÍLUM Á VEGINUM EINBREIÐUM.
SEM BETUR FER VORU ENGIN SLYS ÞARNA EN LITLU MÁTTI MUNA.
OG EF MENN EIGA EKKI PENINGANA FYRIR ÞESSU ÞÁ ER ÉG SKO MEÐ LAUSNINA HÉR.
EINS OG ÉG HEF MARG OFT SAGT BÆÐI HÉR OG ANNASTAÐAR ÞÁ HÆTTIÐ ÞIÐ EINFALDLEGA NÚ ÞEGAR Í EINNI HEIMSKULEGUSTU VEGAFRAMKVÆMD ÍSLANDSSÖGUNAR OG LÁIÐ PENINGANA Í ÞETTA VERKEFNI.
ÞETTA MINNI OKKUR ENN OG AFTUR Á ÞÖRFINNI Á TVÖFÖLDUN VEGARINS.
![]() |
Bílvelta á Hellisheiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2007 | 17:54
Hvenær á þetta eiginlega að taka enda?Hvern i ansk..er lögreglan að gera eiginlega.
Þessi frétt er alveg með ólíkindum að þetta skuli gerast enn og aftur að farmur skuli geta flogið af flutningabíl svona,og hvar er lögreglan sem á að vera út um allan bæ að gæta að lögum og reglum.
Það er alvega á hreinu að þessir menn sem aka og ganga frá farmi bera það mikla ábyrgð í svona málum að það á einfaldlega að taka prófið af þeim ef þeir hafa ekki vit á að ganga frá almennilega.
Er enn og aftur verið að bíða etir dauðaslysi til þess að umræðan getir farið af stað um þetta.?
SEIGIÐ MÉR HVAÐ VILJIÐ ÞIÐ GERA?????????
![]() |
Farmur féll af flutningabíl og veldur miklum töfum á Miklubraut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
11.10.2007 | 14:04
Breyttir jeppar
Þar sem ég ek eina 100km pr dag til vinnu þá er það mjög algeng sjón hjá mér að bilaður bíll sé útí kanti,orðið "bilaður" er kannski en ekki rétta orðið því að bifreið sem hefur verið breytt úr því að vera á 28"dekkjum orginal yfir á 46-49" hlýtur að vera ónýtur.
það er nákvæmlega ekkert í undirvagninum sem upphaflega gerði ráð fyrir því að álagið yrði svona mikið á allt sem hreyfist,og oftar en ekki eru þetta suður að annað í þeim dúr sem eru að "bila" svona tæki eiga auðvitað ekki að vera skráningarhæf og notast sem trússarar við einhverja jökulröndina.
Það er sorglega staðreynd að einhverra hluta vegna er ekkert eftirlit með svona tækjum út á vegunum umfram hinar árlegu skoðanir hjá skoðunarstofum út um allt land en sumar hverjar eru ekkert í stakk búnar til þess að takast á við svona verkefni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.10.2007 | 16:47
Og hvaða dóma haldið þið að þetta fók fái ?????????
Þetta er alveg ótrúlegt,fólkið að aka um bæinn og sumt að þessu hyski er með börnin í bíl með sér.
Slegið á puttana og sagt skamm má ekki,og við hin í stór hættu vegna þessa.
Ég hel að svona mál fari ekki einu sinni inn í dómsali vegna þess að um sömu einstaklingana er ávalt að ræða "góð kunningja" löggunnar.
Og hvaða dóm haldið þig að þetta lið fengi ef svo færi að þeirra mál næðu í dómsali ???
![]() |
Ölvaður og með fíkniefni í ótryggðum bíl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.10.2007 | 11:13
Maður á ekki alltaf að taka mark á mataruppskrifum eins og dæmin sanna........Vinsamlegast beinhreinsið vínberin (í jólauppskrift)
Maður á ekki alltaf að taka mark á mataruppskrifum eins og dæmin sanna........Vinsamlegast beinhreinsið vínberin (í jólauppskrift)·
Allt fór afsíðis sem gat farið afsíðis........· Þessi peysa er mjög lauslát......................· Þau eiga þvílíka myllu, lifa eins og greifingajar og leika á alls eggi......(Geri aðrir betur....) · Hann sló tvær flugur í sama höfuðið............· ....þarna hefði ég sko viljað vera dauð fluga á vegg...... · Ég sá svo sætan strák að ég fór alveg fram hjá mér........· Ég er svo þreyttur að ég henti mér undir rúm...... · Hann sat bara eftir með súrt eplið.................· Og, nú, góðir farþegar, er einmitt fengitími melóna..... · Ég hreinlega vissi ekki í hvorn fótinn ég ætti að setjast......· Hann barasta kom eins og skrattinn úr heiðskíru lofti.... · Þar stóð hundurinn í kúnni...(Þar lá hundurinn grafinn...Þar stóð hnífurinn í kúnni.)· Maður fer í bæinn til að sjá sig og sýna aðra... · Svo handflettir maður r júpurnar...· Já, fólk núorðið er svo loðið á milli lappanna..... · Þetta er ekki upp í köttinn á Nesi.· Betur sjá eyru en auga · Ég er alveg stein vöknuð!(eftir að hafa verið stein sofandi)· Ég er eitthvað svo sunnan við mig.(sagt á Akureyri) · Það er ég sem ríð rækjum hér(að ráða ríkjum)· Ég er búinn að vera andvana í alla nótt · Róm var ekki reist á hverjum degi!( Sagði maður á Selfossi)· Vinsamlegast beinhreinsið vínberin (í jólauppskrift) · Lærin lengast sem lifa (maður lærir svo lengi sem maður lifir)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Maður liggur í rúminu hjá konu sinni, þegar allt í einu er bankað á útihurðina hjá þeim. Hann snýr sér við og lítur á klukkuna og sér að hún er hálf fjögur að morgni. "Ekki ætla ég að fara til dyra." hugsar hann með sér og snýr sér aftur við. Þá er bankað enn harðar á útihurðina.
"Ætlarðu ekki að fara til dyra?" spyr kona hans.
Jæja, hann dregst á lappir, fer niður stigann og opnar. Þar fyrir utan stendur maður. Ekki fór á milli mála, að maðurinn var vel fullur.
"Hæ," sagði sá drukkni, "geturðu komið og ýtt mér?". "Nei, þú ert of fullur, burt með þig, klukkan er hálf fjögur að nóttu og ég var sofandi." segir maðurinn og skellir hurðinni á hann.
Svo fór hann aftur upp í rúm. Kona hans spurði hvað hafði gerst og sagði síðan, "Heyrðu, þetta var nú ekki fallega gert. Manstu þegar bíllinn okkar bilaði og við þurftum að fá einhvern til þess að ýta okkur um miðja nótt til þess að ná í börnin til barnapíunnar? Hvað hefði gerst, hefði sá maður ekki ýtt okkur?".
"Já en þessi maður er blindfullur.", svaraði maðurinn.
"Skiptir ekki máli, við eigum að hjálpa honum." sagði konan.
Maðurinn fer þá aftur fram úr og niður stigann og opnar dyrnar. "Á ég að ýta þér núna?" kallaði hann út í myrkrið.
"Já, takk, endilega" kallaði maðurinn utan úr myrkrinu. "Hvar ertu?", kallaði hinn.
Og sá hífaði kallar: "Ég er hérna í rólunni úti í garði!"!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.10.2007 | 21:10
Vinnan,þyngdin og ellin það er nú betra að vita hvernig maður á að gera þetta og í réttri röð.
Í FANGELSI fær maður 3 fríar máltíðir á dag.
Í VINNUNNI fær maður pásu fyrir 1 máltíð-sem maður þarf að borga sjálfur.
Í FANGELSI fær maður að fara fyrr út fyrir góða hegðun.
Í VINNUNNI fær maður meiri VINNU fyrir góða hegðun.
Í FANGELSI er maður sem opnar og lokar öllum hurðum fyrir mann
Í VINNUNNI þarftu að gera það sjálfur
Í FANGELSI má maður horfa á sjónvarpið og verið í tölvunni.
Í VINNUNNI þú verður rekinn.
Í FANGELSI fær maður sitt eigið klósett
Í VINNUNNI þarf maður að deila með öðrum
Í FANGELSI mega vinir og vandamenn koma í heimsókn
Í VINNUNNI ekki séns í helvíti.
Í FANGELSI borga skattgreiðendur allt fyrir þig
Í VINNUNNI Þarftu í fyrsta lagi að borga til að koma þér í vinnuna, og svo er tekið 40% af þér í skatt....til þess að borga fyrir fangana!
Fangaklefi er að meðali 2-4 fermetrum stærri en meðal skrifstofa hjá RB
Þolþjálfun Það er vel þekkt staðreynd að fyrir hverja mínútu sem við æfum, þá bætum við einni mínútu við lífaldur okkur. Þetta gefur okkur 5 auka mánuði á elliheimili frá 85 ára aldri og borgum fyrir það 45.000.-
===========================================================
Amma mín hóf að ganga 10 kílómetra daglega þegar hún var 60 ára. Í dag er hún 97 ára og við höfum ekki hugmynd um hvar hún er.
===========================================================
Eina ástæðan fyrir því að ég myndi taka upp gönguæfingar væri bara svo ég gæti heyrt þungann andardrátt hennar aftur.
==========================================================
Ég keypti árskort í World Class á síðasta ári. Hef ekki misst eitt kíló. það Þurfti víst að mæta líka.
===========================================================
Ég æfi ávallt mjög snemma á morgnanna, áður en heilinn veit hvað ég er að gera.
===========================================================
Mér líkar langir göngutúrar. Sérstaklega þegar fólk sem ég þoli ekki, fer í þá.
==========================================================
Ég hef virkilega slöpp læri, en sem betur fer, þá hylur maginn á mér þau.
==========================================================
Kosturinn við að æfa dagalega er sá að ég dey heilsuhraust.
==========================================================
Ef þú ætlar í maraþon hlaup, þvert yfir sýslu, mundu þá að velja þá minnstu.
==========================================================
Og síðast en ekki síst,
Þá æfi ég ekki því þá skoppar kókið upp úr glasinu mínu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2007 | 20:54
Munið að læra enskuna vel og vandlega áður en farið er erlendis...........annars.....
Þau fengu fallegt herbergi á þokkalegu hóteli en þegar þau komu inn á baðherbergið sáu þau að það var enginn krókur til þess að hengja handklæði á.
Þau ákváðu því að skrúfa nokkra króka í vegginn, en vildu nú fyrst biðja um leyfi til þess hjá húsverðinum.
Á meðan karlinn stökk út í næstu verslun til að kaupa króka hringdi eiginkonan í húsvörðinn.
Hún var ekki góð í ensku og hljóðaði símtal konunar því svona.
Konan: Jess, hello, ken æ tokk tú ðe hotel djanitor..plís ?
Bryti: Yes, hold on one moment.
Konan: Þeinkjú.
Eftir smá bið
Húsvörður: Yes hello?
Konan: Jess, is ðiss ðe djanitor?
Húsvörður: Yes mem, I am the janitor, how can i help you?
Konan: Jess......Æ was wondering iff its okei for mæ hösband tú skrú som húkkers in ár baþrúm?????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2007 | 20:13
Hræsni hjá Frank Williams.
![]() |
Wurz hættur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)