28.6.2007 | 11:38
Hjólhýsið og vetrardekkin !!!!!!
Ísland í dag (gær) ég var lagður af stað í hringferð um landið okkar góða og kominn á klaustur á mánud í 20c hita og sól sama sagan á þriðjud 22c og sólbruni,en viti mann á miðvikud stóð til að fara áfram austur um á höfn og sjá svo til,ég vaknaði á klaustri og ákvað að fara niður á hótel og skoða spánna á netinu,hlustaði á spánna á leiðinni og mér varð bara kalt ÓFÆRT um hellish eystri ertu ekki að djóka,á netinu sá ég að það voru 18metrar á höfn og 22 við Papey.
Það var heldur niðurlútur ferðalangur sem kom inní hjólhýsið eftir þetta og ferðinni ekki haldið áfram,farið heim aftur vegna þess að ÉG VAR EKKI BÚINN AÐ SETJA HELV....VETRARDEKKIN UNDUR FLOTANN.................
Förum bara vestur og svo norður að vanda í vikunni .......
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.6.2007 | 18:02
VEIÐA VEIÐA OG KVENNADAGURINN !!!!!!!!
Það er auðvitað ólýsanlegt að lenda í góðri veiði eins og ég gerði áðan í henni Brúará,veðrið yndislegt sól 20c hiti og logn fram undir hádegi er fór að kula aðeins,að vísu var fluga það en breytti engu er að veiða á flugu hvort eð er svo af hverju ætti mér að vera illa við flugu!!!!!
Þarna tók ég eina 20 fiska frá 1pundi uppí heil 5pund,sleppti að vísu 8 fiskum sem ég tek bara seinna og verða þá orðnir stærri þetta var alveg meiriháttar skemmtun eins og ávalt í þessari perlu,við vorum þarna fyrir viku síðan ég,pabbi,og Helgi, þá var þetta svipað góð veiði að vísu á 3stangir svo þetta er sennilega besti dagurinn sem ég hef gert þarna í mörg ár gaman gaman gaman.................................. er að setja inn myndir af fiskunum...............................
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.6.2007 | 14:27
ÆÆ !!!!!!!!! ÞETTA ER VONT.
Skyndilega mundi hún eftir þessum hávaxna og myndarlega strák er bar sama nafn og hafði verið með henni í bekk í gagnfræðaskóla um það bil 30 árum fyrr. Hún var því orðin nokkuð spennt þegar henni var boðið inn en þegar hún barði manninn augum varð henni ljóst að ekki var um sama mann að ræða.
Þessi gráhærði maður sem aðeins var byrjaður að fá skalla og skartaði djúpum hrukkum í andlitinu var alltof gamall til að hafa getað verið með henni í bekk.
Kristín gat þó ekki hætt að hugsa um þetta og þegar hann hafði lokið við að hreinsa tennur hennar spurði hún hann hvort hann hefði gengið í gagnfræðaskólann í hverfinu. Hann játti því. ,,Hvenær útskrifaðistu?" spurði Kristín þá. ,,Árið 1972" svaraði hann að bragði.
,,Nú?" hváði hún. ,,Þú hefur þá verið í bekknum mínum."
,,Nú já," sagði hann og horfði rannsakandi á Kristínu.
,,Og hvað kenndir þú?"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2007 | 14:55
KONUR ER ÞETTA VIRKILEGA FRAMTÍÐIN?
Hún hefur verið uppgvötuð að hálfu leyti, en er annars villt og skartar náttúrulegri fegurð.
-Á frjósömustu svæðunum er mikill gróðurvöxtur.Þegar konan er á aldrinum 21-30 ára er hún eins og Bandaríkin eða Japan.
Hún hefur verið uppgötvuð að fullu, er mjög þróðuð og er opin fyrir öllum viðskiptum
-Og þá sérstaklega þeim sem snerta bíla eða peninga.Á aldrinum 30-35 er konan eins og Indland eða Spánn.
-Hún er heit og afslöppuð og þykir mikið til eigin fegurðar koma. Þegar konan er á aldrinum 35-40 ára er hún eins og Frakkland eða Argentína.
-Hún gæti hafa farið illa út úr styrjöldum, en er samt nokkuð hlýr og eftrisóknarverður heimskóknarkostur. Á aldrinum 40-50 er konan eins og Júgóslavía eða Írak.
Hún tapaði stríðinu og fær ekki frið fyrir mistökum sem hún gerði á árum áður.
-Nauðsynlegt er að ráðast í viðamikla endur uppbyggingu.Á aldrinum 50-60 ára er konan eins og Rússland eða Kanada.
-Hún er mikil um sig, þögul og landamærin eru nánast óvarin, en hið kalda loftslag heldur fólki fjarri. Þegar konan er á aldrinum 60-70 ára er hún eins og England eða Mongólía.
-Hún skartar stórkostlegri og sigursælli fortíð en engri framtíð. Eftir sjötugsaldurinn verður konan eins og Albanía eða Afganistan.
-Allir vita hvar hún er en enginn vill fara þangað. Landfræði karlsmannsins:Þegar karlmaðurinn er á aldrinum 15-70 ára er hann eins og Zimbabwe
-Honum er stjórnað af drjóla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2007 | 13:47
Fyrsta ferðahelgin.
Jæja þá á að vera komið sumar og ég ætla að leggja land undir fót og skreppa með hjólhýsið uppí hrepp á eftir,var í fríi í gær og skrapp uppí brúará og veiddi í 2-3 tíma í 3c hita og 15m sek en fékk þó einn fisk
Við verðum 5 hjón saman í jafn mörgum húsum ásamt heilum haug að börnum ávalt gaman með þessum hóp frábærir félagar og yndisleg börn.
Hugrún mín úti í Mexico í 35c hita og við í 3c damm
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.5.2007 | 15:18
Frænur eru frændum verstir !!!!!!!!!!!!!!!
-Ég sagði: Já auðvitað... af hverju spyrðu að þessu ?
-Norðmaðurinn: Ekki við í Noregi. Við sendum þær í endurvinnslu og búum til brauð úr þeim og sendum til Íslands.
Eftir dálitla stund kom Norðmaðurinn aftur og spurði.
Hvað gerir þú við híðið á ávöxtunum þegar þú borðar ávöxt?
-Ég sagði: Auðvitað hendum við því í ruslið.
-Norðmaðurinn: Ekki við. Við sendum það í endurvinnslu og búum til ávaxtasultu úr því og sendum til Íslands.
Nú var mér nóg boðið og sagði:
Hvað gerir þú við smokkana þegar þú ert búinn að nota þá ?
-Norðmaðurinn: Auðvitað hendum við þeim í ruslið.
Svo ég sagði: Ekki við. Við sendum þá í endurvinnslu og búum til tyggjó úr þeim og sendum til Noregs.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2007 | 14:15
Hver fór heim með sætustu stelpunni á ballinu?


![]() |
Fyrsti formlegi stjórnarmyndunarfundurinn að hefjast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.5.2007 | 14:16
Yfirstrikanir "tæknileg mistök" !!!!!!!!!!!!!
Ég heyrði því fleygt fram að yfirstrikanir á Árna eyja peyja væru tæknileg mistök, og fékk meira að seigja skírinu á því.
Þannig bar neflinlega við að blýantar sem notaðir voru, voru ekki nógu dökkir því hafi fólk ekki séð exið í fyrstu og því krassað aðeins við hliðina til að vita hvort hann virkaði ekki alveg örugglega,og því eru þetta talin tæknileg mistök !!!!!!!!!!!!!!!!!! eða hvað?
Þeir seigja líka að Björn hafi litið svo á að kjósendur hafi verið að "undirstrika" sig sem besta manninn en ekki að strika sig út !!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2007 | 11:07
Ertu að fara út með vinunum?
Fékk þetta sent frá einum félaga áðan,hrein snilld !!!!!!!!!!!!!!!!
Eyðublað fyrir karlmenn sem eru að fara út að skemmta sér
Nafn: ___________________________________
Ég óska eftir leyfi frá æðsta yfirvaldi lífs míns fyrir neðangreint tímabil.
Dagsetning: _______
Farið út kl.: _______ Komið heim (í ALLRA síðasta lagi) kl.: ________
Að því gefnu að leyfi fáist, þá sver ég og sárt við legg að heimsækja aðeins þá staði sem tilgreindir eru hér að neðan á þeim tíma sem þar kemur fram. Ég samþykki að reyna hvorki við né daðra við aðrar konur. Ég mun ekki einu sinni tala við aðrar konur, nema þær sem ég hef skriflegt leyfi fyrir hér að neðan. Ég mun ekki slökkva á gemsanum eftir tvo bjóra né neyta meira magns af áfengi en kemur fram hér að neðan fyrr en ég hef hringt eftir leigubíl og fengið munnlegt leyfi fyrir aukadrykknum. Ég skil að jafnvel þótt leyfið fáist þá hefur þú fullan rétt á að vera fúl út í mig viku á eftir án nokkurrar sérstakrar ástæðu.
Áfengi sem leyfið nær til (einingar):
Bjór ___ Léttvín ___ Sterkt vín ___ Alls ___
Staðir sem leyfið nær til:
Staður: _______________ Frá kl.: ______ Til kl.: _______
Staður: _______________ Frá kl.: ______ Til kl.: _______
Staður: _______________ Frá kl.: ______ Til kl.: _______
Konur sem má eiga takmörkuð samskipti við: ________________
MIKILVÆGT ÁKVÆÐI UM NEKTARDANS: Auk þess sem á undan er komið þá lofa ég að halda mér í 20 metra fjarlægð frá fatafellum og/eða erótískum dönsurum. Brot á ákvæði þessu er gild ástæða fyrir sambandsslitum.
Undirskrift:
___________________________
Eyðublað fyrir konur sem eru að fara út að skemmta sér
Nafn: ________________________
Ég er að fara út.
Undirskrift:
___________________________
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2007 | 16:51
Jæja er þetta ekki bara ágætt?
Jæja nú getur þjóðin farið að lifa aftur kosningarnar búnar og sumir glaðir og aðrir ekki eins og gengur.
Við getum farið að huga að sumrinu og fríinu sem er í vændum hvert skildi fólk ætla að ferðast í sumar?
Hvað mig varðar þá verð ég klárlega innanlands í sumar "held ég"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)