Skondin kosningarsaga X-D eða X-????

Ég heyrði alveg óborganlega sögu um daginn af konu einni sem var ekið utan úr sveit á kjörstað.

En þannig var að mætur sjálfstæðismaður fór í sveitina til að ná í frúnna og koma henni á kjörstað þannig að hennar atkvæði færi nú örugglega ekki til spillis,á leiðinni var eins og gengur um margt skrafað og þá auðvitað kosningar og sauðburðurinn hvernig hann nú gengi og gekk hann bara vel að hennar sögn

Nú var komið að því messa svolítið yfir kerlu til að hún mundi örugglega muna hvað hún ætti að kjósa,en kelling þessi var orðin 1/2heyrnalaus og alveg hundgömul,hann minnti hana á að merkja við D=DROTTIN,og þetta skildi kelling vel enda kirkjurækin mjög og búinn að var í sóknarnefnd í sinni sveit áratugum saman.

Jæja, nú kemur kerlin út aftur frá kjörstað og okkar maður spyr hana hvort hún hafi ekki örugglega kosið rétt þ.e. D=DROTTIN,en kerling hváði og sagði nú sagðir þú ekki G=GUÐ !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!


Hvað skal kjósa????????

Það er mér enn algjörlega hulin ráðgáta hvað ég ætla að kjósa á morgun eða yfirleitt hvort ég ætla að kjósa.

einhvernvegin er ekkert í boð hjá öllum og eða allt í boði hjá engum!!!!!!!!!!!Halo

Annars er ég að vísu tilleiddur til að mæta á kjörstað,það kom hingað til mín mikill og góður vinur minn ( ég kalla hann elsta bílabraskara á Íslandi hann er fæddur 1915 sko )og spurði hvort ég gæti ekki kosið fyrir sig,ég auðvitað hváði og sagði að það gæti orðið erfitt,þar til að hann dró upp úr vasa sínum brúnt umslag ( svona á litin eins og bréf pokarnir voru í búðinni í gamladaga) og rétti mér, þetta er semsagt utan kjörstaðar atkvæði.

Og svo kom hún Hugrún mín líka með það sama og ég auðvitað VERÐ að mæta ekki satt????????????????


Kosningar 2007 NEI TAKK

Það er alveg með ólíkindum að þegar maður skoðar þá sem eru í framboði í mínu kjördæmi, sem er suðurkjördæmi, hversu fáir frambjóðendur í efstu sætunum eru í raun þaðan.

Hversvegna í veröldinni ætti ég að kjósa menn úr t.d. Reykjavík til að verja mitt kjördæmi,það hlýtur að vera kappsmál að vera með menn úr "okkar sveit" í fremstu víglínu.

Sjáið t.d. hvað gerðist fyrir norðan var það ekki Halldór Blöndal sem var á framboðsfundi fyrir síðustu kosningar á Sigló og einhver spurði um göng og það komu göng,að vísu heimskasta framkvæmd Íslandssögunar og sú óhagkvæmasta en ..............1/2 vitar samt.

En lítum aðeins yfir það sem er verið að bjóða okkur sunnlendingum.

VG: Atli Gíslason er úr Reykjavik............................hvernig í ósköpunum getur það verið að við ættum að falla fyrir þessu....nei takk.

Sjálfstæðisflokkurinn: Árni Matt úr Hafnafirði (gabblari)............... held ekki.... að færa lögheimili austur er til að fá dreifbýlisstyrkinn.........   Árni Johnsen,.....   JÉ RÆT..........þegar ég er búinn að koma minknum út úr hænsnakofanum,þá hleypi ég honum ekki aftur inn... gáfulegt þetta hjá þeim.

Samfylkingin: Björgvin er sennilega drengur góður og sannanlega "okkar" maður, Lúðvík er ekki bara komið nóg hjá honum.....held það nú bara...

Íslandshreyfingin: Nenni ekki að eyða tíma í þetta rugl.........

Frjálslyndi flokkurinn: Grétar og Óskar tveir af suðurnesjunum......haldið þið að þetta sé þeim til framdráttar?.......Einmitt.

Framsóknarflokkurinn: Guðni og Bjarni er svo sannanlega menn úr "okkar sveit" og geta alveg klárlega haldið utan um okkar hagsmuni, að vísu held ég að Guðni sé orðin svolítið þreyttur.........................Sennilega eru fjölmiðlarnir búnir að gjör eyða þessum flokki undanfarið.....

Þannig að við sunnlendingar eigum nú ekki um auðugan garð að gresja. 


Börnin og stjórnmál

örlítið í tilefni af kosningum...



Nonni litli var aðeins farinn að velta fyrir sér lífinu og tilverunni og
einn daginn fór hann til pabba síns og spurði hann: "Hvað eru stjórnmál?"

Pabbi hans svaraði: "Jú sjáðu til, það er kannski best að ég útskýri það á
þennan hátt: Ég vinn fyrir fjölskyldunni og þess vegna skulum við kalla mig
Auðmagnið. Mamma þín stýrir heimilinu og ræður útgjöldunum og þess vegna
skulum við kalla hana Stjórnvöld. Við erum til þess að sinna þörfum þínum
svo við skulum kalla þig Fólkið. Við getum síðan haldið áfram og kallað
barnfóstruna Öreiga. Litla bróður þinn skulum við kalla Framtíðina.

Farðu nú og veltu þessu fyrir þér og athugaðu hvort þetta kemur ekki heim og
saman. þannig að Nonni litli fór í háttinn og hugsaði stöðugt um það sem
pabbi hans sagði honum.

Um nóttina vaknar hann upp við grátinn í bróður sínum. þegar hann kemur inn
í herbergi hans finnur hann fljótt að bleian hans er blaut og mikil fýla af
henni. Hann fer inn í svefnherbergi foreldra sinna og finnur mömmu sína
sofandi. þá fer hann að herbergi barnfóstrunnar og finnur að hurðin er læst.
Hann kíkir inn um skráargatið og sér föður sinn í rúminu með barnfóstrunni.

Að lokum gafst Nonni litli upp og fór aftur í herbergi sitt og sofnaði.


Næsta morgun segir hann við föður sinn.

"Pabbi, ég held núna að ég skilji
hvað stjórnmál ganga út á." Gott segir faðirinn, segðu okkur frá því. þá
sagði Nonni litli: " Jú sjáðu til, á meðan Auðmagnið riðlast á Öreigunum er
Ríkisstjórnin steinsofandi. Fólkið er hundsað og Framtíðin er í djúpum
skít...


AFTUR TIL FORTÍÐAR

Við erum búin að vera að ræða það hjónin að fara saman út að hlaupa eða labba,ég hef hinsvegar  ekki verið alveg sáttur við það,þar sem hún hefur gert þetta síðustu árin en ég ekki,ég hef haldið því fram að hún sé í svo góðri þjálfun að ég komi ekki til með að eiga roð við henni,og þar sem ég er frekar mikill keppnismaður(tapsár) vildi ég auðvitað ekki fara með henni.Police

Ég hinsvegar er í góðri þjálfun við stangveiðar og skotveiðar ásamt öðru sem ekki er vert að taka fram.

Þessi elska vildi auðvitað ekki gefast upp og við skildum gera eitthvað saman sem er auðvitað æðislega gaman,en hvað halið þið að mín heittelskaða Hearteiginkona hafi gert?

Hún keypti neflinlega handa mér REIÐHJÓL,þvílíkur snillingur sem hún er.

Það var neflinlega þannig að þegar ég kom heim í gærkveldi sá þetta splunkunýja REIÐHJÓL við dyrnar hélt ég auðvitað að nýjasti teinda sonurinn á heimilinu væri komin í heimsókn til að sýna þennan glæsilega fák sinn,en ekki aldeilis.

Nú skildi farið út að hjóla og það gerðum við að sjálfsögðu í gærkveldi og var mjög gaman að upplifa sig “aftur til fortíðar” ég hef eiginlega ekki hjólað í 30ár eða svo,en kem sennilega til með að hjóla mikið í sumar.Whistling


Sveppasósa eða sveppasúpa

 

Þegar ég er orðin svangur þá fæ ég mér að borða,klukkan var rúmlega fjögur í gær og mig farið að svengja ofurlítið en börnin og teindabörn og fleiri vinir ætluðu að koma í mat.

Matseðilinn var mjög einfaldur eins og venja er á mínum bæ þ.e. Sveppasúpa í forrétt og svo var nautafile og svínalund ásamt svínahnakkasneiðum og auðvitað allt grillað með öllu grænmeti, portobello rjómasveppasósu og alless,og svo að sjálfsögðu eftirréttasprengja sem frúin ein gerir.

Matarást er mikil á mínu heimili.HeartInLove

 

En allavega,þarna stóð ég 1/2hungraður og langaði til að fá mér smá súpu tetur svona fyrir matinn sem og ég gerði.

En þegar konan fór að huga að rjómasveppasósunni tók hún eftir því að töluvert minna var í sósupottinum en þegar hún græjaði hana,á þessum tíma var ég komin inní sófa alveg að farast í maganum og minntist hún á þetta við mig,þá rann það upp fyrir mér að ég hafði étið helv....... sósuna með góðri lyst en ekki súpuna,já svona getur græðgin verið mikil á stundum.

Kvöldið fór auðvitað allgjörlega forgörðum hjá mér og ég grillaði ofan í gestina með góðum árangri að vanda og þetta var hin besta veisla”held ég” því ég borðaði auðvitað ekkert algjörlega frá eftir að hafa verið búinn að drekka 1/2L að heitum matreiðslu rjóma með sveppum útí  DAMM  Sick

En svona ef nú lífið,og mig hlakkar mikið til að fara heim á eftir og borða afgangana


*Óheppilega orðaðar auglýsingar*

Stundum er maður að veltast inná hinum og þessum auglýsingarvefum og þá er nú ýmislegt sem maður sér og þá sérstaklega spaugilegu hliðina hér er eitt og annað sem gaman er að skoða.LoL

1. Sérstakur hádegisverðarmatseðill

Kjúklingur eða buff kr. 600, kalkúnn kr.

550, börn kr. 300.

2. Til sölu: Antikskrifborð, hentar vel dömum með þykkar fætur og stórar skúffur.

3. Nú hefur þú tækifæri til að láta gata á þér eyrun og fá extra par með þér heim.

4. Við eyðileggjum ekki fötin þín með

óvönduðum vélum, við gerum það

varanlega í höndunum.

5. Til sölu nokkrir gamlir kjólar af ömmu í góðu ástandi.

6. Þetta hótel býður upp á bowlingsali, tennisvelli, þægileg rúm og aðra íþróttaaðstöðu.

7. Brauðrist: Gjöfin sem allir fjölskyldumeðlimir elska, brennir brauðið sjálfvirkt.

8. Ísafjarðarkaupstaður: Starfsmann vantar, kvenmann, til starfa.

9. Vantar mann til að vinna í dínamítverksmiðju.

Þarf að vera tilbúinn til að ferðast.

10. Notaðir bílar. Því að fara annað og láta svíkja sig. Komdu til okkar!

11. Vinna í boði fyrir mann til að hugsa um kú sem hvorki reykir né drekkur..

12. Ólæs? Skrifaðu okkur strax í dag og við munum veita þér ókeypis aðstoð.


Þekkir þú fínar dömur og alvöru konur í sundur?

Dagurinn í dag er dagur " ógeðslega flottra" og " andskoti klárra" kvenna.LoL



Fínar dömur
: Ef þú hefur ofsaltað matinn sem þú ert að elda, þá skaltu setja kartöflu í pottinn. Hún dregur saltið í sig.
Alvöru konur: Ef þú ofsaltaðir matinn er það bara assgoti pirrandi.


Fínar dömur
: Það er auðvelt að lækna höfuðverk með því að skera límónu í sundur og nudda henni á ennið.
Alvöru konur: Taktu límónu og blandaðu henni við tekíla og salt og drekktu. Höfuðverkurinn hverfur sennilega ekki, en þér verður alveg sama.


Fínar dömur
: Ef þú setur sykurpúða í botninn á vöffluformi, þá lekur ísinn ekki í gegnum það.
Alvöru konur: Sjúgðu bara ísinn úr vöffluforminu. Þú liggur hvort eð er örugglega með fæturna upp í loft í sófanum og borðar hann.


Fínar dömur
: Þú getur komið í veg fyrir að kartöflur spíri með því að setja epli í pokann með þeim.

Alvöru konur: Kauptu karföflumúspakka, hann geymist í heilt ár í eldhússkápnum.


Fínar dömur
: Kökur fá jafna, slétta áferð ef þú penslar þær með eggjahvítu áður en þær fara í ofninn.
Alvöru konur: Betty Crocker segir ekkert til um penslun á kökunni. Slepptu þessu bara
.

Fínar dömur
: Ef þú átt erfitt með að opna sultukrukku er gott að setja á sig gúmmíhanska. Þannig færðu betra grip. .  
Alvöru konur: Biddu myndarlega, ríka og einhleypa nágrannann um að opna krukkuna!  


Fínar dömur
: Ekki hella afgangs rauðvíni. Það má frysta í ísmolabakka og nota í sósur seinna.
Alvöru konur: Hvað er afgangs rauðvín? 
 


Ekki veitti af.

Stórkostlegt framtak þarna á ferðini,bara að menn átti sig á því að það má afa svona BARA þarna,það er neflinlega verið að móta reglur sem miða að því að þeir sem staðnir eru að alvarlegum umferðalagabrotum séu útilokaðir frá mögulegum keppnum og aðgangi að svæðinu í framtíðinni.
mbl.is Akstursæfingasvæði sett upp á gamla varnarsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ LÁ NÚ AÐ.

Tilitleisið er algjört hjá þessum trukkastjórum ég keyri nú þessa leið daglega og ég hélt að þessir menn mættu nú ekki afa hraðar en 80 km pr klst,samkvæmt nú gildandi lögum.

Það er ekki bara það að aka alltof hratt heldur er tillitleysið algjört hjá þeim.

Þegar ekið er þrengslin það aka þeir umhugsunarlaust inná vegin að manni virðist án þess að hugsa um hraða þess ökutækis sem er að koma veginn,svo ég tala nú ekki um þegar þeir vaða inná vinstri akrein og aka þar þangað til maður er kominn framúr.

Sama sagan er niður í Bolaöldum og þar erum við að tala um þjóðveg nr 1 og þeir keyra fyrir mann án þess að hika,mölinn þeysist yfir alla bíla sem aka hjá og þeim gæti ekki verið meira sama.

Hvað vikurbílana varðar þá er oft mjög óhugnanlegt að mæta þeim þegar þeir eru á 100-110km hraða með tengi vagnana vingsandi í allar áttir.

Ég seigi eins og einn góður maður sagði eitt sinn.

ÞETT ER AUÐVITAÐ LÖGREGLUMÁL


mbl.is Malarflutningabíll ók út af við Þorlákshöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband