14.4.2008 | 17:12
Megrun,megrun og aftur megrun,svona á að fara að þessu þá er ekkert mál að missa nokkur KG.
Maður hringir í fyrirtæki og pantar hjá þeim "misstu 5 kg á 5 dögum"
pakkann.
Daginn eftir er barið á dyrnar hjá honum og fyrir utan stendur íturvaxin 19 ára snót í engu nema Nike hlaupaskóm. Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur "Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig".
Hann lætur ekki segja sér það tvisvar og stekkur á eftir henni. Eftir nokkra kílómetra er hann orðinn móður og másandi og gefst upp. Sama stúlkan mætir á þröskuldinn hjá honum næstu 4 dagana og það sama gerist í hvert skipti. Á fimmta degi vigtar félaginn sig, og viti menn, hann hefur misst 5 kg.
Hæstánægður með árangurinn hringir maðurinn aftur í fyrirtækið og pantar hjá þeim "misstu 10kg á 5 dögum" pakkann.
Næsta dag er bankað á dyrnar og fyrir utan stendur einhver sú fallegasta og kynþokkafyllsta kona sem hann hefur á ævinni séð. Hún er eingöngu klædd í Reebok hlaupaskó. Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur "Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig".
Eins og elding tekur hann á rás á eftir skvísunni. Hún er auðvitað í fantaformi og þó hann reyni sitt besta nær hann henni ekki. Næstu fjóra daga heldur þessi rútína áfram og hann kemst smám saman í betra form. Á fimmta degi vigtar hann sig og sér til ómældrar gleði hefur hann misst 10 kg.
Hann ákveður að leggja allt í sölurnar og hringir og pantar "misstu 25 kg á
7 dögum" pakkann. "Ertu alveg viss?"spyr sölumaðurinn " Þetta er erfiðasta prógrammið okkar"
"Ekki spurning" svarar félaginn, "mér hefur ekki liðið svona vel í mörg ár".
Daginn eftir er barið á dyrnar, og þegar hann opnar stendur risastór, helmassaður karlmaður fyrir utan í engu nema bleikum hlaupaskóm.
Um hálsinn á honum hangir skilti sem á stendur "Ef ég næ þér, er rassinn á þér MINN!"
Félaginn missti 32 kg í þeirri viku.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2008 | 16:31
Lúsablesinn leita uppi ungar stúlkur,satt eða logið sagan er góð.
Litla flatlúsin kom þrælkvefuð heim til sín, þú verður að fara betur með þig sagði mamman hlýlega. Ég var óheppin sagði sú litla ég stökk á skeggjaðan mann og áður en ég vissi var ég komin á mótorhjól á hundrað og fimmtíu kílómetra hraða og það var svo kallt. Vertu nú skynsamur elskan sagði mamman finndu þér fallega og ljúfa stúlku og læddu þér inn fyrir buxurnar hennar þar er hlýtt og gott að vera.
Nokkrum dögum seinna kom lúsin heim ísköld og kalin . Hvað er að sjá þig elskan sagði mamman afhverju fórstu ekki að mínum ráðu? Ég gerði það sagði sú litla, ég fann unga stúlku og læddi mér innfyrir buxurnar en stuttu seinna gerðist eitthvað og ég var komin í skeggið á manninum sem ekur á mótorhjóli á 150 kíómetra hraða.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.3.2008 | 14:59
Páskabrandari ársins.Já þetta er algjörlega frábært svona í tilefni páskana..................
Karlinn og sínöldrandi eiginkona hans, fóru í ferð til Jerusalem.
Þar andaðist eiginkonan.
Útfararstjórinn bauð karlinum tvo kosti:
Það kostar 350.000 kr að senda hana heim og þá er athöfnin eftir,
en við getum grafið hana hér í Landinu helga fyrir 10.000 kr.
Karlinn velti þessu svolítið fyrir sér og sagðist svo vilja senda hana heim.
Af hverju ættir þú að sóa 350 þúsundum til þess að senda konuna heim.
Það væri bara indælt að henni væri búinn legstaður hér, auk þess sem
það kostar ekki nema 10 þúsund krónur.
Sá gamli svaraði:
"Fyrir löngu síðan lést hér maður, hann var grafinn hér,
en á þriðja degi þá reis hann upp frá dauðum.
Ég get bara ekki tekið þá áhættu."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.3.2008 | 14:04
Já eru karlmenn svona hræddir við ber brjóst ?? Eða á þetta bara við um Hvergerðinga? Já sennilega..........
Baðvörðurinn talaði um að það hefði verið kvartað, segir Kristin. Það er óalgengt að konur fari topplausar í sund svo að fólk horfði vegna þess að það var hissa. Það voru engin önnur viðbrögð.
JE RÆT hvað kom fyrir ykkur Hvergerðinga eiginlega?Eða var baðvörðurinn kannski illa vaxin kona sem þoldi ekki athyglina sem Kristín fékk
Piparmeyjan leið í lund
lék sér bak við tjöldin
því í laumi hafði hund
til huggunar á kvöldin.
Bannað að bera brjóstin í Hveró | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.3.2008 | 16:26
ÆÆÆ frekar slæm mistök........
Tvær konur eru að bíða á biðstofunni við Gullna hliðið og eru að bera saman sögurnar af því hvernig þær dóu. Sú fyrri segir: Ég fraus til bana.
En hræðilegt, segir hin, að frjósa til bana. Það hlýtur að hafa verið kvalarfullt?
Ekkert svo, segir sú fyrri, þegar maður er hættur að skjálfa af kulda verður maður bara syfjaður og finnur fyrir hlýju. Loks dettur maður bara út. Hvað með þig? Hvað gerðist?
Ég fékk hjartaáfall. Mig var búið að gruna manninn minn lengi um framhjáhald og ákvað að koma snemma heim úr vinnunni einn daginn. En þegar ég kom heim, sat hann bara inni í stofu og horfði á sjónvarpið.
Nú? spyr sú fyrri. En hvað gerðist?
Ég var alveg viss um að það væri önnur kona í húsinu, svo ég hljóp um allt að leita. Upp á háaloft, niður í kjallara, gáði inni í alla skápa og undir öll rúm. Ég hélt þessu áfram þar til ég var búin að kemba allt húsið. Þegar því var lokið var ég svo örmagna að ég hné niður, fékk hjartaáfall og dó.
Hmm, segir sú fyrri, leitt að þú skyldir ekki kíkja í frystikistuna.
Þá værum við báðar á lífi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.3.2008 | 14:24
Já það er margt skrítið eins og td þetta,átti Ingvi Hrafn eða dúfu.............................
-
- Ók Gerald Ford eða Benz?
- Reykti Winston Churchill eða Hofnar?
- Átti Björn Borg eða bara lítinn sveitabæ?
- Notaði Þórarinn Eldjárn eða straujárn?
- Drekkur Svanhildur Kaaber eða Bragakaffi?
- Spila Óli Ólsen eða vist?
- Var Steingrímur Hermannsson eða var faðir hans liðhlaupi?
- Reykir Karl Prins eða Salem?
- Beið Svavar Gests eða var hann löngu farinn?
- Átti Ingvi Hrafn eða dúfu?
- Tók Ragga Gísla eða lét hún Jakob nægja?
- Á Ingi Björn eða er búið að lóga honum?
- Þoldi Njörður P. Njarðvík eða sá hann ekkert nema Sandgerði?
- Notaði Ben Johnson eða Nivea?
- Walt Disney eða var honum hrint?
- Átti Bob Hope eða var þetta vonlaust?
- Notaði Marilyn Monroe eða Gabriel höggdeyfa?
- Þoldi Davið Frost eða varð honum kalt?
- Lafði Díana eða hékk hún?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2008 | 09:48
17 dagar í fyrsta veiðidag ársins mikil er tilhlökkunin..
Jæja þá er þetta að styttast og ég farinn að skoða græjurnar yfirfara og hreinsa skoða myndir frá því í fyrra og láta hugann reika,en 1apríl í fyrra var alveg ógeðslega kalt frost og vindur fraus í lykkjum um leið og maður hætti að kasta entumst ekki nema 1/2daginn þann veiðin að mig minnir lítil.
En núna er nýtt ár og bjartir tímar framundan hjá okkar og það er Brúaráin sem verður að vanda okkar fyrsti túr höfum opnað hana undanfarinn ár en verðum þar 5apríl og vonandi verðum við heppnari með veður núna,veiddi að vísu full lítið í fyrrasumar að vísu mikið magn á fáum dögum held að ég hafi ekki farið nema ca 15daga til veiða í fyrra.
Hérna er mynd frá því í júní mjög góð veiði eftir aðeins 1/2 dag í Brúará þennan dag setti ég í 23 fiska sleppti restinni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2008 | 14:26
Kynmök,dáleiðsla ætli þetta sé rétt?
Kona ein kom heim til sín og sagði við eiginmanninn; Veistu að höfuðverkjakösin sem ég hef verið að fá undanfarin ár eru alveg horfin. Hvað segiru, hvað gerðist? spurði maðurinn.
Hún Magga ráðlagði mér að fara til dáleiðara og hann sagði mér að standa fyrir framan spegil, stara á sjálfa mig og endurtaka; Ég hef ekki hausverk, ég hef ekki hausverk. Og ég hef ekki fengið höfuðverk síðan. Þetta virkaði svona æðislega vel.
Þetta er frábært, þetta er æðislegur árangur. Sagði maðurinn. Þá sagði eiginkonan; Þú hefur ekki verið neinn orkubolti í rúminu síðustu árin. Af hverju drífur þú þig ekki til dáleiðarans og athugar hvort hann geti ekki gert eitthvað fyrir þig svo þetta lagist? Eiginmaðurinn samþykkti að prófa og eftir heimsókn til dáleiðarans kom hann heim og þreif konuna í fangið, reif hana úr fötunum og bar hana inní svefnherbergi, lagði hana í rúmið og sagði Bíddu smá, ég verð enga stund. Svo fór hann inná baðherbergi og kom til baka stuttu seinna og seinni ástarleikurinn með konunni var enn betri en sá fyrri og annað eins hafði eiginkonan ekki upplifað árum saman.
Konan settist upp í rúminu en eiginmaðurinn sagði þá; Ekki hreyfa þig, ég kem eftir smá og svo dreif hann sig aftur inná baðherbergið. Konan var forvitin og læddist á eftir honum og sá að hann stóð fyrir framan spegilinn og endurtók í sífellu, Hún er ekki konan mín, hún er ekki konan mín, hún er ekki konan mín.
Jarðarför hans fer fram næsta föstudag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Já þetta er málið.Af hverju er dísil allt í einu orðið miklu dýrara en bensín? Veit þetta einhver?
Hérna fyrir nokkrum árum var dísil mikið ódýrara en bensín og ég veit vel að þungaskatturinn var settur inní verðið en ég er ekki að meina það,heldur var dísil samt sem áður mikið ódýrara.
Er dísil í tísku á Íslandi? Nei ég seigi nú bara svona........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.3.2008 | 17:21
Brjóstin heilla sama hvort þú ert karl eða kona læknir eða þingmaður ungur eða gamall.....
Kona kom með kornabarn til læknis í skoðun.Hann er svolítið of léttur,sagði læknirinn, er hann á pela eða brjósti? Brjósti, sagði konan.
Láttu mig sjá brjóstin, sagði læknirinn. Hún fór úr að ofan og hann strauk og hnoðaði brjóstin á henni góða stund, og sagði svo: Það er engin mjólk í brjóstunum á þér.
Ég veit, sagði konan, ég er amma hans, en ég er fegin að ég skyldi koma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)