Maður og kona sem höfðu aldrei hist áður, en voru bæði gift öðrum aðilum, höfðu verið bókuð í sama lestarklefann á ferðalagi. Eftir frekar vandræðalega stund og óþægilegar mínútur yfir því að þurfa að deila klefa, voru þau bæði orðin mjög þreytt og sofnuðu fljótlega.Hann í efri koju og hún í neðri kojunni. Um kl 1.00 um nóttina hallaði maðurinn sér yfir kojuna og vakti konuna blíðlega. Pst
pst
. sagði hann. Fyrirgefðu frú að ég sé að trufla þig en viltu vera svo væn að opna skápinn fyrir mig og rétta mér annað teppi, mér er svo kalt. Ég hef betri hugmynd, sagði hún. Hvernig líst þér á að við látum eins og við séum gift - Bara í nótt ? VÁÁ það er frábær hugmynd svaraði hann.Gott sagði hún: Farðu þá og náðu í þitt andsk
teppi sjálfur
Eftir augnabliksþögn þá rak hann við
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2008 | 16:23
Við erum hjálpsamir Íslendingar þegar kemur að ferðamanninum ekki satt?
Tveir Íslendingar eru úti í sveit að aka og sjá bíl fastan úti í kanti.
Þeir ákveða að hjálpa og fara út úr bílnum.
Þetta eru útlendingar og kunna Íslendingarnir lítið í ensku en tekst að spyrja: "Dú jú vant help?" Útlendingarnir svara " no no this is ok"
Íslendingarnir vilja endilega hjálpa og gefa sig ekki og segja: Jes ví help jú
Útlendingarnir: No no this is ok
Íslendingarnir: Jes jes nó vesen - ví help jú
Þeir ná í reipi í bílinn sinn til að freista þess að draga bílinn - í versta falli að ýta honum upp á vegkanntinn aftur.
Útlendingarnir: What are you gonna do?
Íslendingarnir: First ví reip jú - ðen ví ít jú
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2008 | 13:47
Þetta gerðist á gatnamótum í Reykjavík,hvernig haldið þið að háraliturinn hafi verið hjá henni???
Það stoppaði stór trukkur á rauðu ljósi í Reykjavík. Ljóshærð kona stekkur
út úr bílnum sínum, hleypur að trukknum og bankar á dyrnar.
Bílstjórinn skrúfar niður rúðuna og hlustar á hvað hún hefur að segja.
Hæ ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu.
Bílstjórinn gerði ekkert með þetta og hélt bara áfram.
Þegar trukkurinn stoppaði aftur annars staðar á rauðu ljósi, stoppaði
stúlkan hann aftur. Hún stökk út úr bílnum sínum og bankaði á dyrnar hjá bílstjóranum. Aftur skrúfaði hann niður rúðuna. Eins og þau hefðu aldrei talað saman, sagði sú ljóshærða skýrt og greinilega:
Hæ, ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu.
Hristandi hausinn, hunsaði bílstjórinn hana aftur og hélt áfram niður götuna.
Á þriðja rauða ljósinu, þá gerðist það sama. Eins og stormsveipur stökk sú ljóshærða út úr bílnum, hljóp að dyrum bílsins og bankaði.
Bílstjórinn skrúfar niður rúðuna. Enn og aftur segir sú ljóshærða:
Hæ, ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu.
Þegar það var komið grænt ljós, keyrði trukkurinn af stað með það sama að næsta ljósi. En þegar hann stoppaði í þetta skiptið, dreif hann sig út úr trukknum og hljóp aftur að bíl ljóshærðu konunnar. Hann bankaði bílrúðuna og þegar hún skrúfaði hana niður, sagði hann:
Hæ, ég heiti Birgir, það er vetur í Reykjavík og ég er að keyra SALTBÍLINN.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.3.2008 | 11:39
Fermingarbróðirinn full langur,hérna er ráð við því........
Það var einusinni maður sem var ekkert sérlega ánægður með hvernig hann var útbúinn að neðan. Fermingarbróðirinn var hreint út sagt alltof langur, alveg heila 50 cm!!!! Sem var alltof langt. Hann vissi ekki hvernig hann ætti að snúa sér í þessu og fór því til nornar einnar til að fá hjá henni góð ráð.
Nornin hugsaði sig lengi um, áður en hún sagði: - Farðu inní skóginn og þú munt hitta frosk. Spurðu froskinn hvort hann vilji giftast þér. Ef froskurinn svarar nei þá skreppur vinurinn saman um 10 cm, en ef hann svarar já vex hann um 10 cm. Þetta er alveg þess virði að prófa.
Maðurinn vóg og mat stöðuna, og fann svo út að það væri þess virði að taka sénsinn og prófa þetta! Hann gekk út í skóginn, fann froskinn og spurði:
-Viltu giftast mér?
Nei, sagði froskurinn.
Maðurinn hljóp heim, fór úr buxunum og mældi - jú vinurinn hafði virkilega skroppið saman. Nú mældist hann einungis 40 cm.
Manninum fannst nú að vinurinn mætti alveg vera aðeins styttri, svo hann hljóp út í skóginn aftur, hitti froskinn og spurði:
- Viltu giftast mér?
Nei, sagði froskurinn.
Maðurinn hljóp aftur heim til að mæla og nú var hann einungis 30 cm langur. 20 cm hugsaði maðurinn, 20 cm væri alveg fullkomið og með það sama hljóp hann út í skóginn aftur, hitti froskinn og spurði:
- Viltu giftast mér?
Kæri vinur, svaraði froskurinn - ertu heyrnarlaus eða hvað?? Ég hef sagt þetta áður og nú segi ég það aftur: NEI, NEI og aftur NEI.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.3.2008 | 10:39
Ætlum við enn og aftur að láta þetta vaða yfir okkur og ræða þetta bara á kaffistofum landsins?
Já þetta er alveg með ólíkindum að þetta skuli vera liðið,en skildi þetta vera staðreynd að verðið þurfi að vera svona hátt?
Ætlum við enn og aftur að láta þetta vaða yfir okkur og ræða þetta bara á kaffistofum landsins?
Eru þessir olíu furstar ekki bara að nýta sér uppsveifluna í þjóðfélaginu undanfarið og hækka og hækka til þess að þeir geti leikið "góðu gæjana" og lækkað eftir smá tíma og þá stendur nóg eftir fyrir þá?
Algjörlega óþolandi að menn þurfi að hugsa sig um hvort þeir hafi efni á að skreppa t.d. norður á Akureyri að hitta fjölskilduna,spurning um hvort flugið eigi ekki eftir að njóta góðs af þessu.
Hækkar eldsneytið enn? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
7.3.2008 | 17:50
Úr minningargreinum um fólk sem missti af blogginu.
Já það er með ólíkindum hvað ritað er í minningargrein.
- Hann giftist eftirlifandi eiginkonu sinni og átu þau tvö börn.
- Gönguferðin þeirra varð styttri en menn vonuðu. Banvænn sjúkdómur beið hennar bak við stein og sló hana fljótt til jarðar.
- Hún hafði það sterka skapgerð að smá rigningarsuddi setti hana ekki úr jafnvægi.
- Hann var sannur Íslendingur og dó á 17. júní.
- Þrátt fyrir góða greind gekk hún aldrei í kvenfélag.
- Það er löngu vitað mál að bestu og skemmtilegustu vinina eignast maður í
lúðrasveitum. - Hann skrapp úr vinnunni til að fara í þrekpróf hjá Hjartavernd, en kom þaðan liðið lík.
- Ég bið þann sem lífið gaf að hugga, styrkja og bæta aðstandendum skaðann.
- Tók hann fráfall konu sinnar mjög nærri sér vegna barnanna.
- þar voru m.a. María Rögnvaldsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir frá Folafæti. Enda þótt María væri þá hálfslæm í fæti lék hún við hvern sinni fingur.
- Helga lést þennan dag kl 16. Helga hafði ætlað að eyða deginum í annað.
- Í dag kveðjum við kæran samstarfsmann og félaga. Hann tók sér tveggja daga frí til að kveðja þennan heim.
- Og má segja að hún setti ekki svo skál af tvíbökum á borð að ekki stafaði af því mýkt og
listfengi. - Orð þessi eru skrifuð til að bera Sveini (líkinu) kveðju og þakkir frá tengdafólki hans og ekki síður frá tengdamóður hans þótt nú nálgist 20.árið frá fráfalli hennar.
- Hún bjó manni sínum gott heimili og ól honum 9 hraust börn, þar af tvö á sjómannadaginn.
- Ágústa giftist ekki og eignaðist ekki börn í venjulegum skilningi þess orðs.
- Á þessum fjölbreytta lífstíl sínum kynntist Guðjón mörgum mönnum af ýmsum þjóðernum, þ.á.m. Indjánum og Kínverjum. Hann lærði tungumál þeirra að minna eða meira leyti, einkum ensku og norðurlandamálin.
- Persónulega, góði vinur, þakka ég og konan mín þér fyrir innileg samskipti á umliðnum árum. Guð varðveiti þig.
Vertu sæll, ég kem bráðum - Bréf barst að heiman, það færði mér fréttina: Tóti frændi er dáinn. Það hlýtur að hafa verið gott að vera kind í fjárhúsunum hans Tóta frænda.
- Drottinn minn gefðu dánum ró og hinum líkin sem lifa.
- Nú á morgun, þegar Júlíus tekur tösku sína fulla af góðum fyrirbænum og þakklæti og hefur sig til flugs af brautinni, rísum við samstarfsmenn úr sætum og veifum til hans og þökkum samverustundirnar.
Þeir sem guðirnir elska deyja ungir. Þessi orð koma mér í huga þegar ég minnist
afa. Hann var 93 ára þegar hann lést.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í fangelsi fyrir fugl?
Ekki vildi betur til en að hinn 39 ára gamli Isenhour sló einn golfbolta beint í fuglinn sem féll niður úr tré þar sem hann hafði komið sér fyrir í tré sem var í um 50 metra fjarlægð frá upptökustaðnum.
Isenhour hefur beðist afsökunar á atvikinu en hann gæti átt yfir höfði sér fangelsisvist í eitt ár.
Það var hljóðmaðurinn Jethro Senger sem var við störf á upptökustaðnum sem tilkynnti um atvikið. Í vitnisburði hans kemur fram að Isenhour hafi ekið golfbifreið að fuglinum, sem var á þeim tíma í um 270 metra fjarlægð frá upptökustaðnum. Þar sló Isenhour nokkra bolta í átt að fuglinum og reyndi að fá hann til að fljúga burt.
Það tókst ekki betur til en svo að haukurinn færði sig nær upptökustaðnum og hélt áfram að hafa hátt. Isenhour tók þá til við að slá enn fleiri golfbolta í átt að trénu þar sem að fuglinn var staðsettur.
Hljóðmaðurinn segir í vitnisburði sínum að Isenhour hafi slegið allt að 10 golfbolta í átt að fuglinum af stuttu færi áður en hann hitti fuglinn beint í höfuðið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2008 | 17:36
SEX-SEX-SEX-SEX-SEX OG HVAÐ MEÐ ÞAÐ........................
Þetta getur nú átt sér margar skíringar eins og þessar td.
Ósköp er nú fýlan hér
erfitt er að tóra,
áttu nokkuð handa mér
8 x 4
Þú ert orðinn auminginn
eins og lítill drengur
Getur ekki garmurinn
gagnast konu lengur.
Kynmök taki sjö til þrettán mínútur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2008 | 15:20
Stelpur ekki hlusta á ráð karlmanna þegar brjóstastækkun ber á góma.
Hrein og fersk eftir sturtu, stóð ég framanvið spegilinn, ég virti fyrir mér brjóstin á mér og að vanda kvartaði ég yfir því hvað þau eru smá! Í stað venjulega svarsins um að brjóstin á mér væru ekkert smá, breytti maðurinn minn út af venjunni og kom með tillögu.
"Viljir þú að brjóstin stækki, skaltu daglega nudda salernispappír á milli þeirra í nokkrar sekúndur."
Þar sem að ég vildi reyna hvað sem væri, sótti ég mér blað af salernispappír og stóð síðan framan við spegilinn, nuddandi því á milli brjóstanna minna.
"Hvað þarf ég að gera þetta oft" Spurði ég.
"Þau munu vaxa þeim mun meira sem þú gerir þetta oftar," svaraði kallinn minn.
Ég hætti.
"Trúirðu því virkilega að mér nægi að nudda klósettpappír á milli brjóstanna daglega til þess að fá þau til að stækka?"
Án þess að líta upp svaraði hann,
"Virkaði á rassinn á þér, ekki satt?"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2008 | 10:22
Það er ekki heiglum hent að búa til barn,en hér er aðferð sem ein hjón notuðu......
Það er ekki eitt einasta dónaorð í þessu og þetta er mjög fyndið.
Jónas og frú gátu ekki eignast barn svo þau ákváðu að fá sæðisgjafa til að koma af starta fjölskyldu. Daginn sem "sæðisgjafinn" átti að koma í heimsókn, kyssti Jónas konuna sína bless og sagði "jæja, elskan, ég er þá farinn í vinnuna, maðurinn kemur fljótlega."
Hálf tíma síðar, er fyrir tilviljun, barnaljósmyndar, staddur í hverfinu hennar og hringir á bjöllunni í þeirri vona að fá verkefni. Góðan daginn frú, sagði hann, ég er komin til að....... "Ó, þú þarft ekkert að útskýra sagði Jóna feimnislega, ég átti von á þér. Í alvöru, sagði ljósmyndarinn. Nú það er ánægjuleg, vissirðu að börn eru mín sérgrein?? Ja, það er nú akkúrat það sem við hjónin vorum að vonast eftir. Gjörðu svo vel og komdu inn á fáðu þér sæti. Eftir smástund sagði hún, vandræðalega, "hvar byrjum við?" "Láttu mig bara sjá um allt. Ég byrja yfirleitt í baðkarinu, svo á sófanum og loks nokkrar á rúminu. Stundum er meira að segja stofugólfið heppilegast, það er hægt að teygja svo vel úr sér það "
"Baðkarið, stofugólfið, hugsaði Jóna, Engin undra að þetta gekk ekkert hjá okkur hjónum - "Já, frú mín góð, ég get ekki lofað fullkomnum árangri í hvert skipti, en ef við notum mismunandi stellingar og ég skýt frá mismunandi sjónarhornum, þá þori ég að lofa að þú verður ánægð með útkomuna." Vá, það er aldeilis mikið sagði Jóna með andköfum. "Frú mín góð, í mínu starfi verður maður að gefa sér góðan tíma í hlutina. Ég mundi gjarnan vilja skjótast í þetta en ég er viss um að þú yrðir ekki ánægð með útkomuna. "Ætli maður kannist ekki við svoleiðis, tautað Jóna lágt". Ljósmyndarinn dró upp nokkur sýnishorn af barnamyndum og benti Jónu á árangurinn.
"Mér tókst sérstaklega vel til með þessa tvíbura sagði ljósmyndarinn, eins og mamma þeirra var þó erfið". - "Var hún erfið, spurði Jóna ?" "´Ég er nú hræddur um það. Ég varð að fara með hana í lystigarðinn til að ná að ljúka verkinu vel. Fólk safnaðist að og fylgdist með. "Fylgdist með? sagði Jóna og gapti af undrun" - og þetta tók í allt 3 tíma. Móðirin hrópandi og kallandi allan tímann - ég gat varla einbeitt mér, svo þegar það byrjaði að dimma varð ég að gefa í, en það var ekki fyrr en íkornarnir voru farnir að narta í græjurnar þá varð ég að hætta og ganga frá.
Jóna hallaði sér fram og sagði "voru þeir í alvöru farnir að narta í .... græjurnar? Þetta er alveg satt frú mín góð.
"Jæja ef þú ert tilbúin þá ætla ég að geraþrífótinn kláran "ÞRÍFÓTINN???
"Ó já, frú Jóna. ÉG verð að nota þrífót "to put my Canon on, It's much too big to be held in the hand very long."
ÞAÐ STEINLEIÐ YFIR FRÚ JÓNU.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)