Til að lífga uppá gráan hversdagsleikann og gera dagana meira spennandi og innihaldsríkari, mæli ég með að þú gerir eitt/fleiri/öll eftirtalin atriði reglulega....

Já það er margt sem hægt er að gera til að stytta sér stundir þessa dagana ,þetta sendi minn ástkæri bróðir mér í morgun og verð ég að deila þessu með ykkur algjörlega frábærar hugmyndir...LoL

1. Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í honum með sólgleraugu.  Miðaðu með hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir  hægi á sér.

2. Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta rödd þinni.

3. Stattu föst á því að netfangið þitt sé:

Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca eða  Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca

4. Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu "má bjóða þér franskar með þessu?"

5. Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir "Innbox"

6. Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við prjónadót

7. Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur. Þegar allir eru búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með espresso.

8. Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu.

9. Ljúktu öllum setningum þínum með; Samkvæmt spádómum.

10. Ekki nota punkta.

11. Eins oft og mögulega hægt; hoppa í stað þess að ganga

12. Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það  hefur svarað.

13. Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín sé  "taka með".

14. Syngdu með í óperunni

15. Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan  ryþma.

16. Hengdu flugnanet í kringum skrifborð þitt. Spilaðu  frumskógarhljóð af diski alla daga.

17. Tilkynntu vinum þínum fimm dögum fyrir partýið að þú komir  ekki því þú sért ekki alveg upplögð.

18. Biddu vinnufélaga þína að ávarpa þig með Gladiator-nafni  þínu, Rock Hard.

19. Þegar peningarnir koma út úr hraðbankanum hrópar þú "Ég vann!  Ég vann!!! Þriðja skiptið í þessari viku!!!!"

Og að lokum, síðasta ráðið til að halda uppi mátulegri geðveiki í

hversdagsleikanum:

20. Sentu þetta bréf áfram til allra í netfangaskrá þinni, líka  þeim sem hafa sent þér þetta og einkum þó þeim sem hafa sérstaklega  frábeðið sér ÖLL svona bréf.

&#39;·.¸¸.·´¯&#39;·.¸¸·´¯&#39;·.¸¸.·´¯&#39;·.¸ ><((((º>

.¸¸·´¯&#39;·.¸¸.·´¯&#39;·.¸ ><((((º>

Syntu í friði...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Tók einmitt eftir Jóa hoppandi á eftir Tuma í hopputúr.  Og í hádeginu sat hann í Mússó með hallærislegustu sólgleraugu sem ég hef sé og miðaði á mig með gamalli hárþurrku ;)

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 28.11.2008 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband