Eldriborgara kynlíf getur verið svolítið brösótt en í senn greinilega mjög spennandi fyrir þá sem.........................................

 Amma gamla fór í læknisskoðun sem gekk mjög vel. Eftir nokkra þögn leitar amma ráða og segir:
Við hjónum höfum ekki elskast í mörg ár. Hvað getur maður gert til að auka kynlöngun mannsins míns? - Hefurðu prufað Viagra spyr læknirinn.
-Hann vill ekki einu sinni taka inn verkjalyf þó hann sé með höfuðverk segir amma.
- Ég kann ráð við því segir læknirinn. Þú mylur Viagratöflurnar og setur út í kaffið hjá honum og hann tekur ekki eftir neinu.
Amma varð mjög glöð og yfirgaf læknastofuna í flýti. Viku síðar kemur hún aftur niðurbrotin og brúnaþung. Læknirinn spyr hvernig hafi gengið.
- Herfilega, segir amma, herfilega.
- Virkaði ekki ráðið eins og ég sagði þér, spyr læknirinn.
- Jú það virkaði mjög vel. Hann reif sig strax úr öllum fötum og tók mig á matborðinu. Besta kynlíf sem við höfum haft í 25 ár.
 Hver er þá vandinn spyr læknirinn?
- Ég get aldrei aftur látið sjá mig á Hótel Holti, segir amma.

1203313250510


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband