Hvað eru við að gera með svona "gúrku" kellingar á þingi sem ekki þola nýlega orðabreytni.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, gerði athugasemd við orðalag Tryggva Þórs Herbertssonar alþingismanns í kvöld, en Tryggvi talaði um eitt lítið djók þegar hann lýsti málflutningi stjórnarliða.
Tryggvi Þór sagði í andsvari við ræðu Önnu Pálu Sverrisdóttur, varaþingmanns Samfylkingar, að þegar menn teldu sig vera að laga agnúa í skattakerfinu með því t.d. að afnema vísitölutengingu persónuafsláttar þá væri það bara eitt lítið djók.
Þingforseti minnti þingmanninn á að menn töluðu íslensku í þingsal. Þetta var raunar í annað sinn sem Ásta Ragnheiður gerði athugasemd við ræðu Tryggva Þórs, en hann sagði hún þegar hann átti að segja háttvirtur þingmaður.
Bannað að segja djók á þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nýlega orðabreytni???
Óli blaðasali (IP-tala skráð) 20.12.2009 kl. 14:00
Er þetta ekki bara djók?
Eyjólfur G Svavarsson, 20.12.2009 kl. 16:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.