Vissuð þið að það má ekki.......................................................................................

Skrítinn lög

 

 


Hver getur gleymt sögunni um konuna sem setti köttinn sinn inn í örbylgjuofninn, kærði fyrirtækið og vann málið á þeim forsendum að það stæði ekki í leiðbeiningunum að það mætti ekki setja dýr inn í ofninn. Þar af leiðandi hafa hin ýmsu lönd tekið til sinna ráða, og sett fáránlegustu lög til að koma í veg fyrir misskilning af þessu tagi. Hér koma nokkur af þeim….

Í Ástralíu er bannað að stunda kynlíf með kengúrum auk þess sem bannað er að eiga rúm á ákveðnum stöðum án tilskilinna leyfa. Almennir borgarar mega heldur ekki skipta um ljósaperur. Löggiltir rafvirkjar mega einir gera slíkt.

Það fáránlegasta af þessu öllu saman er kannski það að í bænum Victoria er bannað að vera í bleikum stuttbuxum eftir hádegi á sunnudögum.

Í bænum Santa Cruz í Bólivíu er bannað að stunda kynlíf með móður og dóttur á sama tíma. (ojojojojojojojojoj)

Kanadabúum er bannað að stíga um borð í flugvél eftir að hún er farin á loft. Það er líka ólöglegt að fjarlægja plástur og önnur sárabindi opinberlega. Í bæ einum segja lögin enn fremur til um að þegar fangi losnar úr fangelsi skal honum afhent hlaðin byssa ásamt hesti svo hann geti riðið út úr bænum sem fyrst.

Íbúum Calgary er bannað að kasta snjóboltum án þess að hafa sérstakt leyfi frá bæjarstjóra og í Nova Scotia er bannað að vökva garða þegar það rignir. Þar er jafnframt bannað að prumpa á meðan maður reykir en í bænum Oxbridge er bannað að hafa internettengingu sem er öflugri en 56k.

Í Kólumbíska bænum Cali mega konur aðeins stunda kynlíf með eiginmanni sínum og þegar það gerist í fyrsta skipti skal móðir konunnar vera viðstödd.

Enskum konum er bannað að borða súkkulaði í almenningssamgöngutækjum, s.s. lestum og strætisvögnum. Það er líka bannað að borða bökur á jóladag og svo mega eiginmenn alls ekki lemja konur sínar eftir kl. 21 á kvöldin.

Í Frakklandi er bannað að kyssast á járnbrautastöðvum og þarlendir svínabændur mega ekki undir neinum kringumstæðum kalla svínið sitt Napóleon.

Í Indónesíu liggur dauðarefsing við sjálfsfróun.

Ítalskir karlmenn mega ekki ganga um í kjólum. Ef þeir gera það eiga þeir á hættu að verða handteknir. Það er líka bannað að blóta opinberlega og í vissum héröðum mega konur sem heita María ekki stunda vændi.

Í Líbanon mega menn stunda kynlíf með dýrum svo framarlega sem dýrið er kvenkyns. Ef það er karlkyns liggur dauðarefsing við brotinu.

Í Sádí-Arabíu mega karlkyns læknar ekki meðhöndla konur. Lögin segja jafnframt að konur megi ekki gerast læknar. (þetta er náttúrulega fulkomnlega rökrétt hugsun)

Í Sviss mega menn ekki pissa standandi eftir kl. 22 og heldur ekki hengja upp þvott utandyra, þvo bíla eða slá gras á sunnudögum. Þá liggja sektir við því að gleyma lyklum í ólæstum bílum.

Í Singapore eru munnmök með öllu ólögleg auk þess sem samkynhneigð er alls ekki leyfð. Ennfremur er allt klám bannað og fólk má ekki ganga um nakið heima hjá sér þar sem það er talið til kláms.

Í Skotlandi segja lögin að ef einhver bankar upp á og biður um að fá að nota klósett þá skal hann fá að gera það ella hljóti húsráðandi sektir.

Í Tælandi er ólöglegt að fara út úr húsi án þess að vera í nærfötum.

Í Alabama er bannað að keyra með bundið fyrir augun og það má heldur ekki sigla bátum á götunum. Það furðulegasta er samt að fólk má ekki vera með vöffluís í rassvasanum!

Íbúum Alaska er mjög umhugað um elgina sína og þar af leiðandi stendur það í lögum að ekki megi láta þá hanga úr flugvél. Það má heldur ekki henda þeim út úr flugvélum eða gefa þeim áfengi.

Asnar mega ekki sofa í baðkörum í Arizona og þar að auki er ólöglegt að hafa fleiri en tvö kynlífshjálpartæki á einu og sama heimilinu. Í Maricoba County mega svo ekki fleiri en 6 stúlkur búa í sama húsinu.

Í Arkansas eru munnmök bönnuð og ekki má geyma krókódíla í baðkörum. Þar að auki er ólöglegt að bera nafn ríkisins vitlaust fram.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband