Hringsóluðu yfir Lesbos meðan flugumferðarstjórinn svaf

Þetta er nú það grófasta sem ég hef heyrt og gurinn var beðin um að víkja úr starfi í nokkra daga ,,,,ertu ekki að djóka jáááá sæææællll.

Tvær farþegaflugvélar sem áttu að lenda á grísku eyjunni Lesbos hringsóluðu yfir Eyjahafi í rúma hálfa klukkustund vegna þess að flugumferðarstjóri hafði sofið yfir sig.

Gerðu áhafnir vélanna nokkrar árangurslausar tilraunir til að ná sambandi við flugturninn á Lesbos.

Varastjórnstöð á vellinum leiðbeindi vélunum inn til lendingar eftir að þær höfðu beðið í um 40 mínútur.

Að sögn lögreglu hefur flugumferðarstjóranum, sem bar því við að hafa sofið yfir sig, vikið frá störum í nokkra daga. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband