Úr minningargreinum um fólk sem missti af blogginu.

  • Já það er með ólíkindum hvað ritað er í minningargrein.

    kross.jpg  Hláturinn lengir lífið.

    • ‘ Hann giftist eftirlifandi eiginkonu sinni og átu þau tvö börn’.
    • ‘Gönguferðin þeirra varð styttri en menn vonuðu. Banvænn sjúkdómur beið hennar bak við stein og sló hana fljótt til jarðar’.
    • ‘Hún hafði það sterka skapgerð að smá rigningarsuddi setti hana ekki úr jafnvægi’.
    • ‘Hann var sannur Íslendingur og dó á 17. júní’.
    • ‘Þrátt fyrir góða greind gekk hún aldrei í kvenfélag’.
    • ‘Það er löngu vitað mál að bestu og skemmtilegustu vinina eignast maður í
      lúðrasveitum’.
    • ‘Hann skrapp úr vinnunni til að fara í þrekpróf hjá Hjartavernd, en kom þaðan liðið lík’.
    • ‘Ég bið þann sem lífið gaf að hugga, styrkja og bæta aðstandendum skaðann’.
    • ‘Tók hann fráfall konu sinnar mjög nærri sér vegna barnanna’.
    • ‘þar voru m.a. María Rögnvaldsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir frá Folafæti. Enda þótt María væri þá hálfslæm í fæti lék hún við hvern sinni fingur’.
    • ‘Helga lést þennan dag kl 16. Helga hafði ætlað að eyða deginum í annað’.
    • ‘Í dag kveðjum við kæran samstarfsmann og félaga. Hann tók sér tveggja daga frí til að kveðja þennan heim’.
    • ‘Og má segja að hún setti ekki svo skál af tvíbökum á borð að ekki stafaði af því mýkt og
      listfengi’.
    • ‘Orð þessi eru skrifuð til að bera Sveini (líkinu) kveðju og þakkir frá tengdafólki hans og ekki síður frá tengdamóður hans þótt nú nálgist 20.árið frá fráfalli hennar’.
    • ‘Hún bjó manni sínum gott heimili og ól honum 9 hraust börn, þar af tvö á sjómannadaginn’.
    • ‘Ágústa giftist ekki og eignaðist ekki börn í venjulegum skilningi þess orðs’.
    • ‘Á þessum fjölbreytta lífstíl sínum kynntist Guðjón mörgum mönnum af ýmsum þjóðernum, þ.á.m. Indjánum og Kínverjum. Hann lærði tungumál þeirra að minna eða meira leyti, einkum ensku og norðurlandamálin’.
    • ‘Persónulega, góði vinur, þakka ég og konan mín þér fyrir innileg samskipti á umliðnum árum. Guð varðveiti þig.
      Vertu sæll, ég kem bráðum…
    • ”Bréf barst að heiman, það færði mér fréttina: Tóti frændi er dáinn. Það hlýtur að hafa verið gott að vera kind í fjárhúsunum hans Tóta frænda.
    • ”Drottinn minn gefðu dánum ró og hinum líkin sem lifa.
    • ”Nú á morgun, þegar Júlíus tekur tösku sína fulla af góðum fyrirbænum og þakklæti og hefur sig til flugs af brautinni, rísum við samstarfsmenn úr sætum og veifum til hans og þökkum samverustundirnar.

    ”Þeir sem guðirnir elska deyja ungir. Þessi orð koma mér í huga þegar ég minnist
    afa. Hann var 93 ára þegar hann lést.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Frábært

Heiður Helgadóttir, 7.3.2008 kl. 18:32

2 identicon

þetta er hreint ótrúlega fyndið:)

læt fylgja með eitt gullkorn frá leikskólabarni.

barnið: pabbi minn var einu sinni með krullur

...en svo þróaðist hann.Hann segir að allir þróist!

iris Arnardóttir (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 17:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband