28.11.2008 | 09:48
Til að lífga uppá gráan hversdagsleikann og gera dagana meira spennandi og innihaldsríkari, mæli ég með að þú gerir eitt/fleiri/öll eftirtalin atriði reglulega....
Já það er margt sem hægt er að gera til að stytta sér stundir þessa dagana ,þetta sendi minn ástkæri bróðir mér í morgun og verð ég að deila þessu með ykkur algjörlega frábærar hugmyndir...
1. Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í honum með sólgleraugu. Miðaðu með hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir hægi á sér.
2. Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta rödd þinni.
3. Stattu föst á því að netfangið þitt sé:
Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca eða Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca
4. Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu "má bjóða þér franskar með þessu?"
5. Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir "Innbox"
6. Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við prjónadót
7. Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur. Þegar allir eru búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með espresso.
8. Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu.
9. Ljúktu öllum setningum þínum með; Samkvæmt spádómum.
10. Ekki nota punkta.
11. Eins oft og mögulega hægt; hoppa í stað þess að ganga
12. Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það hefur svarað.
13. Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín sé "taka með".
14. Syngdu með í óperunni
15. Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan ryþma.
16. Hengdu flugnanet í kringum skrifborð þitt. Spilaðu frumskógarhljóð af diski alla daga.
17. Tilkynntu vinum þínum fimm dögum fyrir partýið að þú komir ekki því þú sért ekki alveg upplögð.
18. Biddu vinnufélaga þína að ávarpa þig með Gladiator-nafni þínu, Rock Hard.
19. Þegar peningarnir koma út úr hraðbankanum hrópar þú "Ég vann! Ég vann!!! Þriðja skiptið í þessari viku!!!!"
Og að lokum, síðasta ráðið til að halda uppi mátulegri geðveiki í
hversdagsleikanum:
20. Sentu þetta bréf áfram til allra í netfangaskrá þinni, líka þeim sem hafa sent þér þetta og einkum þó þeim sem hafa sérstaklega frábeðið sér ÖLL svona bréf.
'·.¸¸.·´¯'·.¸¸·´¯'·.¸¸.·´¯'·.¸ ><((((º>
.¸¸·´¯'·.¸¸.·´¯'·.¸ ><((((º>
Syntu í friði...
Athugasemdir
Tók einmitt eftir Jóa hoppandi á eftir Tuma í hopputúr. Og í hádeginu sat hann í Mússó með hallærislegustu sólgleraugu sem ég hef sé og miðaði á mig með gamalli hárþurrku ;)
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 28.11.2008 kl. 15:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.