24.10.2008 | 15:30
Angelina Jolie....Brad Pitt og að sjálfsögðu hver annar en ÉG sjálfur
Shrek, Angelina Jolie og Brad Pitt snæddu hádegismat saman.Shrek sagði: Ég hef alltaf talið að ég sé sterkastur allra í heiminum, en hvernig get ég verið viss?Brad sagði: Ég er nokkuð viss um að ég er kynþokkafyllsti núlifandi karlmaður á jörðinni, en ég hef aldrei fengið það staðfest.Angelina samsinnti þessu. Hún sagði: Mér er sagt að ég sé dásamlegust allra kvenna, en stundum efast ég.Þau ákváðu að besta leiðin til að fá staðfestingu á því hvort Shrek væri sterkastur, Brad sá kynþokkafyllsti og Angelina sú dásamlegasta, væri að spyrja hinn fræga talandi spegil: Spegill spegill herm þú mér....Þau ákváðu að hittast aftur í hádegismat daginn eftir og bera saman bækur sínar.Daginn eftir mætti Shrek með breitt bros á andlitinu.Jæja, sagði hann. Það er satt. Spegillinn sagði mér að ég væri sá sterkasti í öllum heiminum.Angelina reigði sig og sagði: Og ég veit núna fyrir víst að ég er dásamlegust allra kvenna á jörðinni.En Brad Pitt, sem hafði setið álútur, lyfti nú upp sorgmædda andlitinu sínu og sagði: Hver í fjandanum er þessi Vignir Arnarson eiginlega ?
Athugasemdir
Góður.............en ég er alveg hiss með Angelinu,- spegilinn sagði örugglega Þórhildur Helga,- en hún kann bara ekki að bera það fram !!
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 24.10.2008 kl. 22:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.