Baldur prestur,Guð,og Lykla-Pétur.Ásamt ráðherra vísu .........

F1BHVXCAD1047CCAJHNW9VCAWDWE6UCASCSD2UCAJ04B4TCAK4TZLGCAL72VNBCA4G0FDACAOH9IXBCAUZFK2QCAFGRAI6CAKCJVNJCAVQBMUYCA5X2H1MCATJ1C1ICA27L5TSCASYRF8ICAGS3P15CAVAN56Y 

Ráðherrann málinu reddaði flott
Í reynd þarf því enginn að bíða
Að búa til börn í glasi er gott
en gemmér samt sjens á að ............ borga reikninginn

prestur

Baldur prestur vaknar á sunnudagsmorgni og sólin skín. Hann ákveður að í dag ætli hann að segjast vera veikur og hann komist ekki til messu. Svo hann hringir í annan prest, tilkynnir veikindin, nær svo í golfsettið sitt og læðupokast upp á golfvöll í þeirri von að enginn sjái hann. Á vellinum er ekki nokkur maður svo ráðabrugg Baldurs prests ætlar að ganga upp. Uppi í Himnaríki snýr Lykla-Pétur sér að Guði og spyr: "Guð, ætlarðu að láta vígðan manninn komast upp með þetta?" Guð horfir niður á Baldur prest þar sem hann slær teighöggið. Kúlan flýgur 420 metra í fallegum boga, skoppar einu sinni á flötinni og rennur svo beina leið ofan í holuna!
Kraftaverkahögg!
Lykla Pétur lýtur skilningsvana á Guð og spyr: ,,Hversvegna í ósköpunum léstu hann fara holu í höggi?"
Drottinn svarar: ,,Hverjum á hann að segja frá þessu?!"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Ljótt af þér að koma upp um hann sr. Baldur ;)

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 24.10.2008 kl. 09:37

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

....Frekar ólíkt okkar manni, en ....góóóðððður.....

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 25.10.2008 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband