Jón og Stína skruppu í viku frí til Texas á fimmtugsafmælinu. Dag einn er Jón að rölta í bænum þegar hann sér í verslunarglugga einum,þessi líka glæsilegu kúrekastígvél á niðursettu verði. Jón hafði alltaf þráð að eiga kúrekastígvél og sér þarna tækifærið. Hann kaupir stígvélin, skellir sér strax í þau og spígsporar hróðugur heim á hótel, þar sem Stína situr við að klippa táneglurnar. Stoltur stillir hann sér upp fyrir framan Stínu og segir Hvernig líst þér á, Stína? Stína gýtur augunum í átt til hans Á hvað? Sérðu ekkert sérstakt? segir Jón spenntur. Stína mænir á hann Neibb Sár og reiður strunsar Jón inn á baðherbergi, skellir í sig 1/2 romm og rífur sig úr fötunum,rýkur síðan aftur fram til Stínu, allsnakinn fyrir utan nýju stígvélin. Tekurðu þá eftir einhverju NÚNA? segir hann og er fastmæltur. Stína lítur upp Hvað hefur svo sem breyst, Jón minn? Hann lafir niður í dag, hann lafði niður í gær og hann mun lafa niður á morgun, ef ég reynist sannspá Jón stappar niður fæti í bræði sinni Veistu AF HVERJU hann lafir niður, ha? Það er vegna þess, Stína að hann er að dást að nýju kúrekastígvélunum mínum!!Það rennur upp ljós fyrir Stínu en síðan hristir hún höfuðið og segir full samúðar Þú hefðir miklu frekar átt að kaupa þér hatt, Jón minn.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.