Ég fer á hreindýr,nú er bara að viða að sér upplýsingum um framkvæmd veiðanna.
Já mikið andskoti vorum við félagarnir (Gestur) heppnir að fá dýr og mikið djöf... hlakkar okkur til að fara til veiða með haustinu,og að mörgu þarf að hyggja þegar farið er til þessara veiða í fyrsta skipti eins og við.
Og þá er bara að fara að æfa sig með riffilinn góða og þar vantar sko æfingu hef ekkert notað hann í mörg ár og sannanlega þörf á æfingu.
Og svo er það auðvitað nammi nammið þ.e. steikurnar uff.
Athugasemdir
Og á hvaða svæði fékkst þú dýr góurinn. Mér skilst að best sé að fá sér góðan veiðieftirlitsmann og þá er málinu reddað !!
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 4.3.2008 kl. 12:47
Já þetta er svæði 2 og þessir vönu gera bara grín af manni og seiga að þetta sé svæðið fyrir fatlaða (er svo auðvelt) já og góða gæt það held ég að sé grundvallar atriði.
Vignir Arnarson, 4.3.2008 kl. 13:20
Og til hamingju með dýrið !!! Minn maður segir að þetta sé svo auðvelt svæði að þú gætir eins farið og skotið rollu út á túni !!! en....dýr samt segi ég og fínt að fá það í kistuna fyrir svona matgæðinga eins og ykkur hjónin !!
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 4.3.2008 kl. 19:47
Já já það er bara dýrari týpan sem maður fær frá þessum kalli þínum,greinilegt að maður þarf að tala yfir hausamótunum á honum í næstu fer norður.
En hvernig er það fékk hann dýr?
Vignir Arnarson, 4.3.2008 kl. 19:50
Já já, hann fékk belju á 7,- sem ku vera gríðarlega erfitt svæði og eingöngu fyrir vaska og vel vaxna veiðimenn,- hugrakka og hörkuduglega
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 5.3.2008 kl. 12:16
Hreindýr eða óhreindýr
Kristján Eldjárn Þorgeirsson, 5.3.2008 kl. 16:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.