21.2.2008 | 16:35
Framhjáhald já þú verður að vera góður leikari líka !!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Kona var að halda framhjá manni sínum og var í rúminu með elskhuganum þegar þau heyra sér til mikillar skelfingar að eiginmaðurinn stingur lyklinum í skrána á útidyrahurðinni. Konan reynir að finna eitthvað ráð í flýti. Hún tekur fram flösku af nuddolíu og púður. Hún hellir olíunni yfir elskhugann og hellir svo púðrinu yfir hann þannig að hann lítur út eins og stytta. Ekki hreyfa þig fyrr en ég segi að þú megir það, segir hún og klæðir sig í flýti. Stattu bara þarna grafkyrr. Eiginmaðurinn kemur inn í svefnherbergið og spyr: Elskan hvað er nú þetta? Þetta, æji þetta er bara stytta, segir konan kærulaus.? Gunna og Jón fengu sér eina fyrir stuttu þannig að ég ákvað að redda mér einni líka, þetta er svo smart. Ekkert er rætt meira um styttuna, ekki einu sinni yfir kvöldmatnum. En klukkan 3 um nóttina læðist
eiginmaðurinn fram úr rúminu, fer fram í eldhús, nær í samloku og mjólkurglas og réttir styttunni.
Gjörðu svo vel, segir hann. Ég stóð eins og hálviti hjá Jóni og Gunnu í heila tvo daga og enginn bauð mér vott né þurrt.
Athugasemdir
Kágs
Markús frá Djúpalæk, 21.2.2008 kl. 16:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.