Þessi saga bjargaði gjörsamlega fyrir mér deginum sem var annars ágætur ........

Einu sinni var gömul kona að ganga niður götu með tvo troðfulla ruslapoka. Lögreglumaður stóð þarna rétt hjá og tók eftir því að það var gat á öðrum pokanum og 5000 kr seðlar flugu úr pokanum endrum og eins.
eitthvað fannst honum þetta dularfullt og gekk upp að konunni
'góðan daginn væna mín' sagði hann 'hefur þú tekið eftir því að það eru 5000 kr seðlar fjúkandi úr pokanum þínum?'
konan stoppar og lítur bak við sig og sér seðlana á víð og dreif um götuna
'Æ þakka þér fyrir væni minn' stundi í konunni 'Ég ætti nú að drífa mig í að taka þá upp'
En þegar hún ætlar að leggja af stað að týna upp seðlana stöðvar lögregluþjónninn hana 'Engan asa væna mín, hvernig stendur eiginlega á því að þú ert með fullann ruslapoka af fimm þúsund köllum? varstu að ræna banka?'
Gamla konan brosti 'nei það gerði ég nú ekki en það vill svo til að bak við garðinn minn er stór fótboltavöllur og alltaf þegar mikilvæg mót eru í gangi að þá koma oft ungir menn og míga í blómabeðin hjá mér svo ég tók upp á því að standa þarna með garðklippurnar og segja '5000 kr. eða ég klippi hann af'
'jahá.. þetta er áhugaverð hugmynd' sagði lögregluþjóninn hugsi '..en hvað ertu með í hinum pokanum?'

'Það eru ekki allir sem borga...'

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

æææææ

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 29.1.2008 kl. 20:46

2 Smámynd: Kristín Jakobsdóttir Richter

LOL! Einmitt sem að ég myndi vilja gera en sjálfsagt ekki þora!

Kristín Jakobsdóttir Richter, 30.1.2008 kl. 18:23

3 identicon

HE HE GÓÐUR :)

Annars, takk fyrir síðast, alltaf gott og gaman að koma í höfnina.

kv

Dagrún

Dagrún Ingvarsdóttir (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband