HÉR VAR KVENMAÐUR Á FERÐINNI,ENN OG AFTUR TEKST ÞEIM AÐ SNÚA OKKUR UM FINGUR SÉR OG ÞAÐ EKKERT SMÁ !!!!!

Tveir einstaklingar óku bílum  sínum, um var að ræða konu og mann. Slysin gera ekki boð á undan sér eins og  í þessu tilfelli en bílarÞeirra skullu skyndilega saman. Lánið lék við þau en þau sluppu ómeidd eftir þennan annars harða árekstur. Konan rankar við sér felmtrislegin,skríður úr bíl sínum og segir: "Svo, þú ert þá karlmaður, en spennandi. Og ég er kona.Vá, sjáðu bílana okkar! Þeir eru gjörsamlega í klessu, en sem beturfer slösuðumst við nú ekkert. Þetta hlýtur að vera tákn frá Guði um að okkur sé ætlað að hittast aftur, vera vinir og búa saman í friði til æviloka." Upp með sér  stamar maðurinn loks út út sér: "Ó,já, ég er þér alveghjartanlega sammála!"  "Þetta hlýtur að vera tákn frá Guði!" hélt konan áfram, ég meina sjáðu,  þetta er annað kraftaverk. Bíllinn minn er algjörlega í klessu en þessi  vínflaska brotnaði ekki. Guð vill örugglega að við drekkum þetta vín og  höldum þannig upp á heppni okkar og yndislega sameiginlega framtíð sem við  eigum í vændum."Síðan  réttir hún manninum flöskuna. Hann kinkar kolli til samþykkis,opnar flöskuna  og drekkur hana hálfa og réttir síðan konunni. Konan tekur flöskuna, setur  tappann í og réttir manninum hana aftur. Maðurinn spyr: "Ætlar þú ekki að fá  þér?" Konan svarar: "Nei. Ég held ég bíði bara eftir  lögreglunni..."

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Já, þetta var hrikaleg lífsreynsla!

Markús frá Djúpalæk, 20.12.2007 kl. 16:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband