3.12.2007 | 12:56
HAFIÐ ÞIÐ EINHVERTÍMANN PÆLT Í SVONA HLUTUM ????
HAFIÐ ÞIÐ EINHVERTÍMANN PÆLT Í SVONA HLUTUM SEM ERU EINHVERNVEGIN EKKERT AÐ ÞVÆLAST FYRIR OKKUR Í HINU DAGLEGA LIFI.
Vissuð þið að....?
...það er ekki hægt að sleikja á sér olnbogann
...krókódíll getur ekki stungið útúr sér tungunni
...hjarta rækju er í hausnum á henni
...í rannsókn á 200.000 strútum í yfir 80 ár hefur ekki einn stungið hausnum í sand
...svín geta ekki horft til himins
...menn stunda að meðaltali 3000 sinnum kynlíf um ævina og eyða meira en tveimur vikum í kossa
...rúmlega helmingur fólks í heiminum hefur hvorki hringt né svarað í sím
...rottur og hestar geta ekki ælt
...fiðrildi geta bragðað með fótunum
...á tíu mínútum leysir fellibylur meiri orku en er í öllum kjarnorkuvopnum í heiminum samanlagt
...Á meðaltali kafna 100 manns á kúlupennum árlega
...að meðaltali er fólk hræddara við köngulær en dauðann
...35% af fólki sem notar persónuauglýsingar í dagblöðum fyrir stefnumót eru gift
...fílar eru einu dýrin sem geta ekki hoppað
...Aðeins 1 af hverjum 2 milljörðum munu lifa til 116 ára aldurs
...Það er mögulegt að leiða kýr upp stiga en ekki niður
...Konur blikka augunum næstum tvöfalt oftar en karlar
...snigill getur sofið í 3 ár
...ekkert orð í ensku rímar við month
...augun á okkur eru alltaf jafn stór frá fæðingu en nefið og eyrun hætta aldrei að vaxa
...allir snjóbirnir eru örvhentir
...forn-egypskir prestar plokkuðu ÖLL hár af líkamanum, líka augnabrúnirnar og augnhárin
...augun á strútum er stærri en heilinn í þeim
...typewriter er lengsta orðið sem hægt er að skrifa með aðeins einni röð á lyklaborðinu
...ameríkanar borða að meðaltali 18 ekrur af pizzu hvern einasta dag
.ef þú myndir öskra í 8 ár, 7 mánuði og 6 daga myndir þú búa til næga orku til að hita 1 kaffibolla
...rottur fjölga sér svo hratt að eftir 18 mánuði geta tvær rottur átt milljón afkomendur
...súperman kemur fyrir í hverjum einasta sjónvarpsþætti af Seinfeld
...kveikjari var fundinn upp á undan eldspýtum
..."kvak" anda bergmálar ekki og enginn veit afhverju
...23% bilana í ljósritunarvélum stafa af því að fólk hefur reynt að ljósrita á sér óæðri endann
...þú munt sennilega borða 70 skordýr og 10 köngulær í svefni um ævina
...flestir varalitir innihalda fiskihreistur
..allir hafa persónugreinanleg tunguför eins og fingraför
...ef þú myndir reka við stanslaust í 6 ár 9 mánuði myndi myndast gas sem jafngildir krafti atómssprengju
...fullnæging svína stendur í 30 mínútur (Hvernig finna menn þetta út og af hverju?)
...Ef þú lemur hausnum við vegg brennir þú 150 hitaeiningum á klukkutíma
...menn og höfrungar eru einu tegundirnar sem stunda kynlíf sér til skemmtunar
...sterkasti vöðvinn í líkamanum er tungan
...maurar geta lyft 50 faldri þyngd sinni, togað 30 falda þyngd sína
...Leirgedda (það er fiskur) er með 27.000 bragðkirtla. (Hvað í ósköpunum getur verið svona bragðgott neðst í vatninu?)
...flóin getur stokkið 350 falda lengd sína, það er svipað og maðurinn stökkvi yfir fótboltavöll
...kakkalakki getur lifað í 9 daga án höfuðs áður en hann sveltur til bana
...sum ljón eðla sig 50 sinnum á dag
...krossfiskar hafa engan heila (Ég þekki líka svoleiðis fólk)
...rúmlega 95% allra þeirra sem lesa þetta munu reyna að sleikja á sér olnbogann!!
Jæja pælið í þessu:-) !!!
Athugasemdir
Eftirfarandi fullyrðingar eru rangar:
...fílar eru einu dýrin sem geta ekki hoppað
Fílar eru einu spendýrin sem geta ekki hoppað. Fílar eru líka einu spendýrin sem eru með fjögur hné.
..."kvak" anda bergmálar ekki og enginn veit afhverju
Allt hljóð endurvarpast. Þetta er algjört bull.
ÓA (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 13:15
frábær lesning, nú skil ég afhverju ljón og höfrungar eru uppáhaldsdýrin mín:/
Íris Arnardóttir (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 20:29
Þetta voru nú aldeilis gagnlegar upplýsingar
Sigþrúður Harðardóttir, 4.12.2007 kl. 10:04
Ég reyndi ekki að sleikja á mér olnbogann, sem gerir mig að 5% mannveru. En eru snjóbirnir það sama og ísbirnir? Og ég get alveg horft til himins.
Markús frá Djúpalæk, 5.12.2007 kl. 14:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.