25.10.2007 | 17:43
Hallo Akureyri
Jæja nú erum við hjónin ásamt örverpinu okkar að leggja af stað til höfuðstaðar norðurlands,perluna Akureyri.
Við köllum þetta menningar ferð eins og í fyrra og sannanlega er mikið að sjá og gera fyrir norðan þó kominn sé vetur mikil gróska er í leiklistinni og vonandi fáum við miða á óvitana erum þar á bið.
Nú svo er auðvitað til eitthvað sem heitir matarmenning og á hún gríðarlega vel við okkur hjónin enda er ég búinn að panta borð hjá Friðriki V ´´a laugardagskvöldið.
Svo skemmtilega vill til að ég mun hitta annað árið í röð "gamla" skólasystir og mikla vinkonu okkar sem hefur búið útá Kanarí til margra ára en hún núna fyrir norðan og við hittumst annað kvöld í matarboði mikið hlakka ég til.
Athugasemdir
Og sé ég ykkur ekki í nágrenninu ?
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 25.10.2007 kl. 23:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.