Lykla-Pétur kann á konur......

untitled 2

Þrjár konur lentu í bílslysi, dóu og fóru til himna.

Þegar þær komu þangað sagði Lykla-Pétur við þær, "Það er aðeins ein regla á himnum: ekki stíga á endurnar!"

Þær fóru inn um hliðið og sáu að það voru ekkert nema endur út um allt. Það var eiginlega ómögulegt að stíga ekki á neina þeirra. Konurnar þrjár pössuðu sig á því að stíga ekki á neina önd, en því miður steig ein konan ofan á eina önd.

Um leið kom Lykla-Pétur með ljótasta mann sem hún hafði á ævi sinni séð.



Lykla-Pétur hlekkjaði þau saman og sagði "Refsingin fyrir að stíga ofan á önd er að eyða ævinni, hlekkjuð við þennan ljóta mann!"

Daginn eftir, steig önnur kona alveg óvart ofan á eina öndina. Lykla-Pétur mætti strax á svæðið með annan rosalega ljótan mann. Hann hlekkjaði þau saman eins og hann hafði gert við fyrstu konuna.

Þriðja konan sá þetta allt og vildi alls ekki eyða ævinni, hlekkjuð við ófríðan mann. Hún var því ofur varkár þegar hún steig niður fæti.

Mánuðir liðu og henni tókst að sleppa við að stíga ofan á önd. Einn dag kom Lykla-Pétur til hennar með myndarlegasta mann sem hún hafði nokkurn tíma séð. Hávaxinn, massaður, með löng augnhár og grannur.

untitled 1



Lykla-Pétur hlekkjaði þau saman án þess að segja orð

Hamingjusama konan sagði "Hvað ætli ég hafi gert til að verðskulda það að vera hlekkjuð við þig að eilífu?"  




Myndarlegi maðurinn sagði "Ég veit ekki um þig, en ég steig ofaná önd!"

untitled

Er ég karlremba??? Nei. En þetta er sko karlremba eða hvað segið þið???????

Er ég karlremba? Nei en þetta er sko karlremba eða hvað segið þið

 Hversu marga karlmenn þarf til að opna bjórdós?
Engan, bjórinn á að vera opinn þegar hún kemur með hann.

Af hverju reynir maður ekki við konuna fyrir framan sig í biðröðinni á féló?
Kona sem er í biðröð á féló, getur aldrei haldið þér uppi.

Af hverju hafa konur nettari fætur en karlmenn?
Þetta er eitt af grunnatriðum þróunarinnar, sem gerir það að verkum að þær geta staðið nær eldhúsvaskinum.

Hvernig veistu hvenær kona er að fara að segja eitthvað gáfulegt?
Hún byrjar setninguna á "Vitur maður sagði eitt sinn við mig..."

Hvernig gerir þú við kvenmannsúr?
Þú gerir ekki við kvenmannsúr, það er klukka á eldavélinni

Af hverju prumpa karlmenn frekar en konur?
Konur geta ekki þagað nógu lengi til að byggja upp nægilegan þrýsting.

Ef að hundurinn stendur bakdyrameginn og konan við aðaldyrnar, hvoru hleypir þú fyrst inn?
Hundinum að sjálfsögðu, hann þagnar um leið og hann kemur inn.

Hvað kallarðu konu sem hefur misst 95% af gáfum sínum?
Fráskilda!

Vísindin hafa fundið fæðutegund sem dregur úr kynlöngun kvenna um heil 90%
Fæðan er Brúðarterta.

Í upphafi skapaði Guð heiminn og hvíldist.
Þá skapaði Guð manninn og hvíldist.
Þá skapaði Guð konuna.
Síðan þá hefur hvorki Guð eða maðurinn getað hvílst.

Af hverju deyja menn á undan konunum sínum?
Þá einfaldlega langar til þess.

Róni gekk upp að konu á Laugaveginum og sagði: "Ég hef ekki borðað í fjóra daga!"
Konan horfði á hann og sagði: "Ég vildi að ég hefði þennan viljastyrk!".

Sonurinn: Er það satt pabbi, að í sumum ríkjum Afríku kynnist eiginmaðurinn ekki
eiginkonni, fyrr en hann giftist henni?"
Faðirinn: Það gerist í öllum löndum, sonur sæll".

Karlmaður auglýsti í einkamáladálkinum: "Kona óskast".
Daginn eftir fékk hann tugi bréfa, sem öllu voru á sama veg: "Þú getur fengið mína".

Besta leiðin til að muna alltaf eftir afmælisdegi konunnar; er að gleyma honum einu sinni


Það er gott að eiga frúna sína enn óskerta

Hugarvíl og harmur dvín,

er horfi ég á frúna.

Hún er eina eignin mín,

sem ekki rýrnar núna.


Þessi verður að teljast algjör þumbi........................

Hjón nokkur fóru upp í herbergið sitt til að fá sér hopp þegar þau höfðu ekkert annað við tímann að gera. En glugginn var opinn og það flaug býfluga inn og beint inn í klof konunnar. Hjónin urðu dauðskelkuð og ákváðu að fara á Neyðarvaktina.

Loksins þegar þau komust að og gátu sagt lækninum hvað amaði að, lagði hann til að best væri að setja hunang á tippi og hafa samfarir við konuna til þess að laða að sér býfluguna og þá væri hægt að draga tippið út með henni.  

Hjónin samþykktu áætlunina eftir smá umræður. Læknirinn hóf þá lækninguna, í fyrstu rólega og yfirvegað en eftir fáeinar mínútur fór hann að káfa á brjóstum konunnar og hún að stynja og öskra í takt við lækninn.

Eiginmanninum leist ekkert á blikuna og öskraði; “Bíddu nú við, hvað í andskotanum heldurðu að þú sért að gera læknir?”  og læknirinn svaraði ákveðinni röddu; “Áætlunin breyttist, ég ætla að drekkja helvítis býflugunni.”


Passið ykkur á hundunum

Kona labbar inn á bar með litla Chihuahua hundinn sinn, við hliðina á henni er haugafullur maður. Drunki maðurinn ælir allt í einu yfir allt og yfir hundinn. Allt í einu hrópar fyllirafturinn upp yfir sig og potar í hundinn:
-hvað er þetta, ekki man ég eftir að hafa étið þennan bita.

Nýr þjóðsöngur í ljósi aðstæðna........................

Ísland var land mitt, ég aldrei því gleymi,
Ísland í gjaldþroti sekkur í sæ,
íslenska krónan hún þynnist og þynnist,
við íslenska hagkerfið segi ég bæ,
Ísland í erfiðum tímum það stendur
Íslenska stjórnin hún failar margfallt
Íslenski seðillinn er löngu brenndur
Ísland er landið sem tók af þér allt.

Er seðlabankastjóri starfi sýnu vaxinn? Hefur hann næga menntun? Hvað seigð þið þarna úti um þetta?

Er seðlabankastjóri starfi sýnu vaxinn? Hefur hann næga menntun? Hvað segið þið þarna úti um þetta?

Já það er vona að maður spyrji svona ég veit ekki betur en að hann sé menntaður lögfræðingur og veit ekki einu sinni hvort hann er hdl eða hrl,eða er hann kannski bara með lögmannapróf sem í raun þíðir það að hann getur bara starfað við innheimtu.

Því skildum við þegnar þessa lands ekki gera þá kröfu til æðsta stjórnanda banka okkar Íslendinga að hann hafi haldbæra menntun eins og öll önnur alvöru fyrirtæki gera?

Hættum þessu helvítis pólitíkusar rugli þegar verið að ráða í svona stöður,ef þetta er hugsað með rökréttum hætti þá sjáum við hverslags rugl þetta er,þó svo að ráðherrar séu góðra gjalda verðir þá eru þeir ávalt með sína ráðgjafa,og það er ekki síður þeirra reynsla sem ráðherrar eigna sér er þeir telja sig hæfa í hvað sem er og standa svo eftir eins og þetta dæmi sannar gjörsamlega óhæfur.

Svo mikið er víst að ef ég mundi sækja um stöðu forstjóra landsvirkjunar og eða ríkissáttasemjara,þá kæmi fallegt og vel skrifað bréf um að ég hefði ekki næga menntum til starfsins.

Ég geri þá skírlausu kröfu hér með að Davíð Oddsyni verði umsvifalaust vikið úr starfi sem seðlabankastjóra og ráðin verði til starfa maður með haldgóða þekkingu til þess að stjórna þessari mikilvægu stofnun.

Svo má líka spyrja sig hvort við sem eigum jú þennan banka fáum að ráða einhverju um það hver verður fyrir valinu.

Gaman væri að heyra í ykkur lesendur góðir um þetta mál.


Lögfræðingur á rjúpnaveiðum.

Lögfræðingur nokkur frá Reykjavík ákvað að skreppa á rjúpu. Hann fór upp í Borgarfjörð og fann góðan stað nokkuð fyrir frá sveitabæ. Hann var búinn að veiða nokkrar rjúpur og var að endað við að skjóta eina í viðbót og er að sækja hana er bóndi kemur að honum. Þeir heilsast og tala saman en eftir það segist bóndinn nú eiga þessa rjúpu. Það samþykkir lögfræðingurinn ekki og segist þekkja sinn rétt og hann hafi skotið hana og því eigi hann rjúpuna.

Þá spyr bóndinn hvort að þeir eigi bara ekki að útkljá þetta með þriggja sparka reglunni, sem að er algengt hér í Borgarfirðinum. Lögfræðingurinn verður þá svolítið forvitinn og vill fá að vita meira. Bóndinn segir honum að fyrst sparki hann í lögfræðinginn þrisvar og síðan sparki lögfræðingurinn í hann þrisvar og svona gengur það þangað til að annar gefst upp. Lögfræðingurinn samþykkir það og segir bóndanum að sparka. Bóndinn byrjar að sparka í magann á honum og hnígur hann niður við það, næst sparkar hann í sköflunginn á honum, og er lögfræðingurinn orðinn svolítið sár en tekur samt við þriðja sparkinu sem að er mjög fast í punginn. Eftir að lögfræðingurinn er búinn að jafna sig segir hann: “Jæja nú er komið að mér” og býr sig til að sparka. Þá heyrist í bóndanum:

 “Nei, mér er andskotans sama um eina rjúpu,þú mátt bara eiga hana”.


Já ok fær hann ekki nema 2.5milljónir á mánuði greyið í laun fyrir að koma bankanum í þessa aðstöðu

Já ok fær hann ekki nema 2.5milljónir á mánuði greyið í laun fyrir að koma bankanum í þessa aðstöðu.

Ég bara get ekki orða bundist um þessa frétt og hugsið ykkur þetta:

Þrátt fyrir að ríkið hafi yfirtekið Glitni er ekki gert ráð fyrir því að uppsagnir séu fyrirhugaðar hjá bankanum. Glitnir greip fyrr á árinu til sparnaðaraðgerða, meðal annars með uppsögnum á þriðja hundrað starfsmanna. Þá lækkuðu stjórnarmenn bankans í launum auk þess sem mánaðarlaun forstjórans, Lárusar Weldings, lækkuðu um helming, úr fimm milljónum í 2,5 milljónir.

Hver andskotann er að þessu helv.... liði eiginlega,fyrir nokkrum árum var svar manna við ofurlaunum forstöðumanna fjármálastofnana að við mættum ekki missa þessa menn til erlendra fyrirtækja því yrðum við að greiða þeim "mannsæmandi laun" je ræt,  ætli við hefðum bara ekki átt að leifa þeim að fara úr landi til hinna og eða vera ekkert að senda þá heim aftur,þokkaleg sending það.

Já sæææællllll ég er til í að greiða aðra leiðina fyrir þessa uppa út aftur .....  Devil


mbl.is Milljóna tap starfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Notkun á vaselíni á varla að vera svona er það ?????????

Félagsfræðingur er að gera rannsóknir á notkun á vaselíni.  Hann hittir konu og spyr hana út í notkun hennar.  „Jú ég nota það t.d. við skurði og bruna á húð“. „Eitthvað annað“, spyr maðurinn „Eins og hvað“ spyr konan.  „Tja.. hmm.. já t.d. kynlíf“ segir maðurinn.
„Jú, auðvitað“, segir kona, „ég set það á hurðarhúninn svo maðurinn komist ekki inn“ LoL


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband