Já er ekki rétt að hækka bílprófsaldurinn?????

Það eru vafalaust margir sammála mér,og örugglega margir ósammála mér,en eigum við ekki aðeins að skoða þetta út frá nýjum glugga? OK gerum það.

Það fyrsta sem í hugan kemur er að einstaklingur verður ekki lögráða fyrr en hann hefur náð 18ára aldri,þetta eru lög.Þessi sami einstaklingur má þó gifta sig fyrir 18ára aldur,en,hann má t.d. ekki kaupa kampavínið í veisluna sína það verður einhver annar að gera,sjáum við fullbúin brúðhjón fyrir okkur fyrir utan ríkið í kringluni að biðja okkur hin um að kaupa fyrir sig 10 kassa af kampavíni,nei sennilega ekki.

Hvenær verða menn lögráða?
Menn verða lögráða þegar þeir verða 18 ára. Hafi þeir gengið í hjónaband fyrir þann tíma verða þeir þó lögráða við hjúskaparstofnun.

Við verðum að átta okkur á að þegar 17ára barn er úti að aka með vini sína í bíl sem hugsanlega við foreldrar eigum,við gætum verið að tla um100-300 hestafla ökutæki þá erum við að treista þessu sama barni fyrir hugsanlega 4-5 mannslífum,EN ÞAU MEIGA NO:1 EKKI GIFTA SIG.NO:2 EKKI KAUPA SÉR TÓBAK.NO:2 EKKI KAUPA ÁFENGI.NO:4 EKKI KAUPA SÉR ÖKUTÆKI.(með leifi sýslumanns)

Það er svo hrapandi mikið ósamræmi í þessu öllu að ég bara skil ekki hvernig þetta er hægt,börn meiga,meðan þau eru börn stofna okkar börnum í lífshættu á stundum með því að aka um götur og vegi landsins sem verður nú að teljast heldur hættulegra en að t.d.gifta sig.(þó það auðvitað geti verið hættulegt út af fyrir sig) 

Hvaða samræmi er í þessu ? Ég bara spyr.


mbl.is Sviptur ökuleyfi á fyrsta degi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt málverk á hverjum morgni

Já það er allveg yndislegt að vakna í svona veðri eins og í morgun,hvít mjöll yfir öllu og heiðríka,maður sest yfir kaffibolla með ristuðu brauði og ætlar sér að líta í blöðin,en það er bara ekki hægt,svo fallegt er að horfa úr stofuglugganum austur yfir og sjá ávalt nýtt málverk á hverjum morgni,þarna er Heklan í öllu sínu veldi hvít og falleg,Mógilshöfði og Rauðufossfjöllin,Tindfjöll og Mýrdals og Eyjafjallajökullinn,þetta er sú mynd sem ég sé og breytist dag frá degi,stórglæsilegt um há vetur að sjá  þegar sólin er að rísa bak við þessi fjöll,þá myndast allveg ótrúlega falleg birta sem gerir umhverfið óviðjafnanlegt.En hvað um það fjöllin eru þarna og verða um ókomna tíð og sennilega sólin líka svo það er um að gera að halda áfram að njóta þess besta sem boðið er uppá  dag hvern.

Í dag snérist þetta allveg við miða við gærdaginn það snjóaði heima en það var autt þegar ég kom í bæinn,en þó var sjáanlegur munur á bílunum,þeir voru neflinlega ekkert klesstir heima þótt það hefði snjóað öfugt við gærdaginn.LoL

Það er allveg með ótrúlegt hvað mikið af fólki virðist hafa miklar og sterkar skoðanir á pólitík,sérstaklega núna svona fyrir kosningar,það bara spretta upp heilu sérfræðingasveitirnar af þessum  liði,hvar í anskotanum eruð þið eiginlega hina 46mánuðina,hvernig dettur ykkur í hug að einhver taki mark á þessu endalausa bulli í ykkur sem eruð búinn að hafa 48mánuði til að tjá ykkur en gerið það svo núna,ætli það væri ekki meira vit í að hafa skoðanir sem eru það heilsteyptar að þær hanga þó í heilanum þó ekki nema væri út kjörtímabilið.

 


Fyrsta bloggfærsla

Nú er sko vorið komið Whistling   eða hvað?

Jú það örlaði á hvítu í morgun og allveg helv....mikil hálka á fjallinu og svo heirði ég í fréttum að það væri bara allt vitlaust í bænum útaf veðri,var meira að seigja farinn að spá í að fá lánaðan bílinn hjá konunni til að komast í bæinn í vinnuna út af þessum fréttaflutningi,svo komst ég auðvitað í bæinn á hinum frábæra KALOS,og hvað haldið þið að ég hafi séð,en ekki auðar götur í borginni en klessta bíla út um allt,hvað er það sem við sveitavargarnir gerum í hálku,jú förum varlega og leggjum fyrr af stað,en þessi aðkoma í borgina bar þess engin merki að svo væri.

Jú jú auðvitað er vorið komið,bara ekkert að flýta sér,en komán,só vott,ég meina tjaldurinn er kominn og þá er sko komið vor.

Hvað um það 1 í veiði er allavega á sunnudaginn og þá förum við félagarnir og leggjum undir okkur Brúará,loksins loksins er komið aftur nýtt veiði ár,var að vísu ekkert sérstakt í fyrra,en þær voru fáar og stórar bleikjurnar sem ég fékk enda tóm þvæla að vera veiða þessa litlu,miklu betra að gera bara eins og ég að bíða og leifa þeim að stækka  Halo.

Jæja er þetta ekki gott í bili,held það nú bara 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband