Farið varlega mjög hált og töluverður renningur.

smá töfVar að lenda í bænum og veðrið á leiðinni er frekar slæmt 3-6 stiku færi og blint á milli flughált og töluverður vindur, má ekki breytast mikið hitastigið til þess að þetta verði 1/2 verra.
mbl.is Víða hálka á vegum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumir ættu nú bara að taka taka dyrabjölluna úr sambandi hjá sér.

Dyrabjallan hringir hjá einni heimavinnandi og fyrir utan stendur ókunnugur maður. "Afsakaðu ef þér finnst ég vera grófur en ég er tilbúinn að borga þér 10.000 kr bara fyrir að fá að sjá á þér brjóstin".

Konan ætlar að fara að skella hurðinni á nefið á honum en hugsar svo að þetta sé svo sem sárasaklaust fyrir þennan pening. Hún lyftir peysunni og hann borgar henni það sem upp var sett. Hann býr sig undir að fara en snýr sér aftur að konunni "Hvernig lýst þér á 50.000 kall fyrir að taka öll fötin af ?" Hún hugsar um allt sem hún geti gert fyrir þann pening og segir OK, rífur af sér fötin sýnir kalli og klæðir sig aftur. Hann borgar og gengur burt, snýr sér snögglega við og segir "Úr því að við erum byrjuð hvernig lýst þér á 150.000 fyrir að koma í rúmið með mér??"

Konan hugsar þetta dágóða stund og ákveður svo að slá til. Þau klára sig af og hann borgar og fer. Um kvöldið kemur maðurinn hennar heim úr vinnunni og spyr kellu "Hvernig var svo dagurinn hjá þér". "Hann var bara mjög góður" segir hún hálfglottandi. Hann sest inní stofu en kallar svo fram eftir smástund "Heyrðu elskan, kom einhver frá skrifstofunni í dag með orlofspeningana mína??"


HAFIÐ ÞIÐ EINHVERTÍMANN PÆLT Í SVONA HLUTUM ????

HAFIÐ ÞIÐ EINHVERTÍMANN PÆLT Í SVONA HLUTUM SEM ERU EINHVERNVEGIN EKKERT AÐ ÞVÆLAST FYRIR OKKUR Í HINU DAGLEGA LIFI.

Vissuð þið að....?

...það er ekki hægt að sleikja á sér olnbogann

...krókódíll getur ekki stungið útúr sér tungunni

...hjarta rækju er í hausnum á henni

...í rannsókn á 200.000 strútum í yfir 80 ár hefur ekki einn stungið hausnum í sand

...svín geta ekki horft til himins

...menn stunda að meðaltali 3000 sinnum kynlíf um ævina og eyða meira en tveimur vikum í kossa

...rúmlega helmingur fólks í heiminum hefur hvorki hringt né svarað í sím

...rottur og hestar geta ekki ælt

...fiðrildi geta bragðað með fótunum

...á tíu mínútum leysir fellibylur meiri orku en er í öllum kjarnorkuvopnum í heiminum samanlagt

...Á meðaltali kafna 100 manns á kúlupennum árlega

...að meðaltali er fólk hræddara við köngulær en dauðann

...35% af fólki sem notar persónuauglýsingar í dagblöðum fyrir stefnumót eru gift

...fílar eru einu dýrin sem geta ekki hoppað

...Aðeins 1 af hverjum 2 milljörðum munu lifa til 116 ára aldurs

...Það er mögulegt að leiða kýr upp stiga en ekki niður

...Konur blikka augunum næstum tvöfalt oftar en karlar

...snigill getur sofið í 3 ár

...ekkert orð í ensku rímar við month

...augun á okkur eru alltaf jafn stór frá fæðingu en nefið og eyrun hætta aldrei að vaxa

...allir snjóbirnir eru örvhentir

...forn-egypskir prestar plokkuðu ÖLL hár af líkamanum, líka augnabrúnirnar og augnhárin

...augun á strútum er stærri en heilinn í þeim

...typewriter er lengsta orðið sem hægt er að skrifa með aðeins einni röð á lyklaborðinu

...ameríkanar borða að meðaltali 18 ekrur af pizzu hvern einasta dag

 

.ef þú myndir öskra í 8 ár, 7 mánuði og 6 daga myndir þú búa til næga orku til að hita 1 kaffibolla

 

...rottur fjölga sér svo hratt að eftir 18 mánuði geta tvær rottur átt milljón afkomendur

 

...súperman kemur fyrir í hverjum einasta sjónvarpsþætti af Seinfeld

 

...kveikjari var fundinn upp á undan eldspýtum

 

..."kvak" anda bergmálar ekki og enginn veit afhverju

 

...23% bilana í ljósritunarvélum stafa af því að fólk hefur reynt að ljósrita á sér óæðri endann

 

...þú munt sennilega borða 70 skordýr og 10 köngulær í svefni um ævina

...flestir varalitir innihalda fiskihreistur

 

..allir hafa persónugreinanleg tunguför eins og fingraför

...ef þú myndir reka við stanslaust í 6 ár 9 mánuði myndi myndast gas sem jafngildir krafti atómssprengju

...fullnæging svína stendur í 30 mínútur (Hvernig finna menn þetta út og af hverju?)

...Ef þú lemur hausnum við vegg brennir þú 150 hitaeiningum á klukkutíma

...menn og höfrungar eru einu tegundirnar sem stunda kynlíf sér til skemmtunar

...sterkasti vöðvinn í líkamanum er tungan

...maurar geta lyft 50 faldri þyngd sinni, togað 30 falda þyngd sína

...Leirgedda (það er fiskur) er með 27.000 bragðkirtla. (Hvað í ósköpunum getur verið svona bragðgott neðst í vatninu?)

...flóin getur stokkið 350 falda lengd sína, það er svipað og maðurinn stökkvi yfir fótboltavöll

...kakkalakki getur lifað í 9 daga án höfuðs áður en hann sveltur til bana

...sum ljón eðla sig 50 sinnum á dag

...krossfiskar hafa engan heila (Ég þekki líka svoleiðis fólk)

...rúmlega 95% allra þeirra sem lesa þetta munu reyna að sleikja á sér olnbogann!!

Jæja pælið í þessu:-) !!!


Ekkert svo slæmt ég hef oft séð það verra þarna.

Þegar ég fór í vinnuna í um kl 09,00 var útlitið ekkert gott,en þegar á fjallið var komið var þetta ekki svo slæmt 10-20 stiku færi sem verður að teljast rjóma gott en mikið helv..... var hvasst og sá ég nokkra bíla í þrengslum útaf.

Glæra hálka sem er nú heldur verri en snjóhálka,en allt gekk þetta nú enda ekið á ca 60km hraða og reynt að fara varlega sérstaklega þegar maður mætir stórum og þungum trukkum er neflinlega á 900kg rebba lús í milli keyrslunni núna.


mbl.is Hellisheiði lokuð vegna veðurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óþvera hráefni í pylsunni

Hvar ætli hann hafi keypt pylsuna þessi?  LoL

Sennilega verið óþvera hráefni í henni en var hún frá pylsuvagninum eða N1 eða olis?

 


mbl.is 10 þúsund króna pylsa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólaskap skrítið þetta með það að fara í jólaskap einu sinni á ári.

Já öll vitum við að jólin koma bara einu sinni á ári og þá fara allir eða vel flestir í jólaskap er það vegna þess að við erum að gera hlutina saman eins og að baka,versla inn,búa til matinn eða velja fötin,eða sýnum við hvort öðru meiri kærleik en venjulega?

Það skildi þó ekki vera að við gætum eingöngu sýnt af okkur kærleik og væntumþykju í desember ár hvert.    Heart

En það verður í það minnsta ekki komist hjá því að það er að fara í hönd alveg yndislegur tími þar sem skammdegið leggst yfir okkur með sinni dökku dulúð þar sem ljósin lýsa okkur leiðina heim til okkar ástvina en þar kúrum við og kjössum undir teppi með kerti og horfum hvort á annað, InLove      en er það þá í janúar sem við förum í fýluna og við tekur veraldlega stressið og hversvegna skildi það vera?

Af hverju erum við ekki bara í jólaskapi allt árið?Whistling


Rafmangslaust Ísland ef landsvirkjun seigir svo,getur það verið að þetta sé satt kæri landi?

Er það virkilega þannig að við verðum rafmagnslaus ef landsvirkjun seigir svo?

Ég var að velta því fyrir mér þegar ég las fréttina um það að landsvirkjun ætlaði að velja  netþjónabú á Íslandi og fyrirtæki á sviði kísilhreinsunar fyrir sólarrafala, fremur en ganga til samningaviðræðna við fyrirtæki sem hyggja á byggingu nýrra álvera á Suður- eða Vesturlandi,fyrir mér er þetta eiginlega með ólíkindum að eitt fyrirtæki skulu geta lagt framtíðarplön heilu byggðalagana í rúst með svona ákvörðun.

Við hérna í Þorlákshöfn höfum verið nokkuð vongóð með að fá hugsanlega og búið okkur bæði leynt og ljóst undir að fá svona stórt fyrirtæki inní okkar samfélag með Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga fremst í broddi fylkingar og eftir þá vinnu varð niðurstaðan að styrkur verkefnisins felst ekki minnst í því að jarðvarmaorkan á Suðurlandi verður nýtt í héraði. Annað sem einnig er mikilvægt er að ekki er eingöngu verið að tala um álbræðslu heldur einnig endurbræðslu á áli sem kallar á fjölda vel launaðra hátæknistarfa og veldur engri mengun. Orkugarðurinn verður byggður upp í áföngum en ekki er talið nauðsynlegt að stækka höfnina í Þorlákshöfn vegna fyrsta áfangans sem byggir á 60 þúsund tonna álveri. Til þess mun þó koma á síðari stigum og er kostnaður við stækkun hafnarinnar áætlaður um fjórir milljarðar króna.

Svo öruggur var bæjarstjórinn okkar að hann gerði samning sem er þannig að samningur Arctus og Ölfuss tryggir hinsvegar einkarétt Arctus á viðræðum við Ölfus og vilyrði á lóð vestan við bæinn. Samningurinn er í gildi allt til vors á næsta ári. "Samningurinn tryggir Arctus einkarétt á viðræðum við Ölfus um uppbyggingu áltengdrar starfsemi en samkvæmt samningum skuldbindur sveitarfélagið sig til þess að tala ekki við aðra um slíka uppbyggingu.

Það er spurning um að sveitafélagið noti nú aðstöðu sína til þess að fá þetta rafmagn inn með því að láta orkuveituna uppá heiðinni OKKAR skaffa okkur þetta,við erum jú í lykil aðstöðu til þess að benda þeim á að næsta hola sem fái leyfi verði að senda okkur rafmagnið sem okkur vantar.!!!!!!!!!!!!Police

En ég hef heyrt margt skrafað um þann ágæta mann Jón Hjaltalín Magnússon sem er aðalmaðurinn í þessari þróun en mig langar til að minna þessa sömu menn á eftirfarandi.

Afhending Viðskiptaverðlaunanna 2002 og tilnefning Frumkvöðuls ársins 2002. Ávarp ráðherra.

18/12/02

    Valgerður Sverrisdóttir,
    iðnaðar- og viðskiptaráðherra

    Afhending Viðskiptaverðlaunanna 2002 og
    tilnefning Frumkvöðuls ársins 2002
    Þriðjudaginn 17. desember 2002.

Frumkvöðull ársins 2002.

Ég hef oft hugsað til þess hvers vegna okkur Íslendingum hefur ekki tekist að koma á fót meiri iðnaði sem tengist með beinum hætti íslenskri stóriðju, einkum álframleiðslu. Einn af þeim fáu sem hefur tekist það er Jón Hjaltalín Magnússon sem er frumkvöðull ársins 2002. Fyrirtæki Jóns - Altech JHM - er dæmigert þekkingarfyrirtæki á vel afmörkuðu sérsviði sem þróar og framleiðir tæknibúnað fyrir skautasmiðjur álvera. Altech JHM er vel þekkt nafn í áliðnaði um allan heim og hefur nýlega gert sinn stærsta samning fyrir nýtt álver í Ástralíu.


Jón var landsliðsmaður í handbolta, eins og flestir sem komnir eru til fullorðinsára vita. Hann var þekktur fyrir sín þrumuskot, eins og segir í kunnum dægurlagatexta, og þótti með afbrigðum sóknharður maður. Ég gæti trúað að þetta sóknarskap og eldmóður hans hafi dugað honum vel í gegnum tíðina því aldrei hefur hann látið deigan síga.

Mér finnst einkar vel við hæfi að Jón Hjaltalín Magnússon hafi verið valinn Frumkvöðull ársins 2002 og vil nota tækifærið að óska honum til hamingju og áframhaldandi velfarnaðar.

KVEÐJA,VIÐ VILJUM RAFMAGN TIL ÞESS AÐ LIFA AF TAKK FYRIR.

Hættur í vinnuni/spurning um að fara að skjóta rjúpur....................

Jæja þá er loksins kominn sá tími að ég hætti í vinnunni eins og staðið hefur til frá því að ég sagði upp í byrjun september,en það var hinsvegar ekki fyrr en á föstudaginn að við náðum að gera starfslokasamningin og er ég mjög ánægður með að vera farinn.

Nú tekur við nýr og betri kafli með nýjum og stærri verkefnum,sem gaman verður að takast á við.Whistling


Tónleikarnir með Andrea Bocelli voru stórkostlegir.

Það var ekki laust við að eftirvæningar gætti í augum flestra sem þarna voru saman komnir enda var um að ræða heimsviðburð sem við hjónin létum ekki fram hjá okkur fara með tilstilli englana okkar þeim Hjalta Hugrúnu og Hörpu ásamt tengdabörnum,þau neflinlega gáfu okkur miðana á tóleikana snemma í haust.

En það var ánægu hrollur sem hríslaðist niður líkamann þegar snillingurinn byrjaði að syngja og auðvitað tók hann flest þekktustu lögin eins og Granada,Mamma,La bohe´me,og O surdato ´nammurato.

Með honum í dúett voru sópran söngkonan Daniela Bruera sem er alveg æðislega flott og barítóninn Gianfranco Montresor einnig mjög góður ásamt hinni frábæru sinfóníu Tékklands.

Í heild sinni var þetta yndislegir tónleikar meiriháttar gaman að upplifa það að sjá þennan snilling sem maður hefur hlustað á árum saman við allar aðstæður.

Eitt var þó ekki í lagi og það var hljóðkerfið fyrir hlé mjög lélegur hljómur og söngurinn naut sín ekki nógu vel en eftir hlé hafði greinilega eitthvað verið gert og fá þeir sem um hljóðið sáu engar þakkir fyrir.


Er kynlífið orðið leiðigjarnt ?

Og ég sem ætlaði að skreppa smá flugtúr ja hérna sennilega held ég bara áfram að vera flughræddur.

En eins og hann Tony Elwood sagði „Þeir leigja þér tvíbreitt rúm með næði og kampavínsflaumurinn er endalaus en segja svo að þú megir ekki gera það sem liggur beinast við og konan hans líka:Þeir virðast hafa gert allt sem þeir gátu til að ýta undir rómantík, allt nema að færa manni ostrur, þeir ættu því ekki að kvarta undan hegðun fólks,”

 


mbl.is Háloftakynlíf bannað í risaþotu Airbus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband