28.2.2008 | 15:16
ÞAÐ FER NÚ EKKI ALLTAF SAMAN AÐ VERA NÝ RÍKUR SÆGREIFI OG VITIÐ, HVAÐ ÞÁ EF MENN ERU AÐ REINA AÐ VERA STANGVEIÐIMENN
ÞESSAR SAMRÆÐUR ÁTTU SÉR STAÐ Í EINU AÐ VEIÐIHÚSUM LANDSINS Á LIÐNU SUMRI OG ÉG VISS UM AÐ ÉG HEYRÐI ÞÆR RÉTT EN ÞÆR VORU EINHVERNVEGIN SVONA.
Tveir nýríkir sægreifar voru í laxveiði í fyrsta hollinu í einni dýrustu laxveiðiá landsins. Á síðasta degi voru þeir að ræða saman um veiðina yfir hádegisverði þegar annar þeirra segir: Mér finnst nokkuð dýrt að
veiða hér, ég var að taka saman kostnaðinn og sé að við séum búnir að eyða um 300 þúsundum og bara búnir að fá einn fisk! Félaginn tekur strax við sér og segir: Mér þykir þetta dýr fiskur, það var eins gott að við fengum ekki fleiri!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2008 | 10:48
Eiga konur að spila golf eða bara læra nudd? Gætu þó orðið góðar i hvorutveggja........
Tvær vinkonur voru saman í golfi þegar önnur varð fyrir því óhappi að hitta kúluna illa í upphafshöggi og horfði með skelfingu á eftir kúlunni sem stefndi á hóp karlmanna. Kúlan lenti inni í miðjum hópnum og einn maðurinn hné til jarðar haldandi báðum höndum á milli fótanna, greinilega sárþjáður. Vinkonurnar hlupu til mannanna og þegar þær komu að hópnum hélt maðurinn enn höndunum á milli fótanna. Sú sem hafði slegið kúlunni baðst afsökunar og bauð fram aðstoð. Maðurinn vildi ekki að svo stöddu þiggja aðstoð og sagðist jafna sig eftir smá stund. Konan þráist við, sagðist vera sjúkraþjálfari og vildi fá að þreifa aðeins á manninum. Maðurinn lét tilleiðast og fékk hún hann til að leggjast á bakið og tók hendur hans frá og renndi buxnaklaufinni niður og byrjaði að nudda hann rólega.
Eftir smástund spurði hún manninn hvernig honum þætti þetta. Maðurinn svaraði því til að honum þætti þetta mjög gott en hann væri enn að drepast í þumalfingrinum!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.2.2008 | 17:11
Þessir kaupsýslumenn,leiga sér konur og halda svo að þeir geti greitt með debet,rifan er til annara nota en að taka á móti kortum.
Leiga á íbúð og lítil skattsvik....................................
Kaupsýslumaður utan af landi fór í viðskiptaferð til Reykjavíkur. Hann hitti þar unga og huggulega konu og fékk að njóta ásta með henni næturlangt. Umsamið verð fyrir greiðann var kr. 30.000
Daginn eftir mundi kaupsýslumaðurinn að hann var ekki með reiðufé á sér, bara greiðslukort, sem hann gat ekki notað til að borga konunni. Því samdi hann við hana um að ritari sinn myndi senda henni greiðsluna, það yrði búin til nóta og á henni stæði Leiga fyrir íbúð svo allt liti nú vel út. Með þetta skildu þau.
Þegar heim kom fannst manninum að greiðinn hefði ekki verið 30.000 kr virði, og hann fór að sjá aðeins eftir þessu, samviskan lét á sér kræla, enda var hann giftur. Hann lét því ritara sinn senda konunni helming greiðslunnar kr. 15.000 sem leigu fyrir íbúðina, ásamt eftirfarandi athugasemdum:
1. Það kom í ljós að íbúðin hefur áður verið notuð. Því er þetta of há leiga.
2. Það var enginn almennilegur hiti í íbúðinni.
3. Þessi íbúð var alltof stór, til þess að líða vel í henni og hafa það notalegt.
Því mun ég ekki greiða nema kr. 15.000 fyrir húsaleiguna.
Nokkru seinna barst kaupsýslumanninum eftirfarandi bréf frá konunni:
1. Auðvitað hefur svona falleg íbúð verið notuð áður. Það væri heimska að álíta annað.
2. Hitinn var nægur, en þú kunnir ekkert á að stilla hann.
3. Íbúðin var alls ekki of stór, en þú hafðir engin almennileg húsgögn til að fylla upp í hana.
Því krefst ég þess að þú greiðir umsamda leigu að fullu, fyrir íbúðina. Verði það ekki gert, mun ég hafa samband við fyrri leigusala þinn.!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2008 | 15:46
Því latari sem konan verður því fleiri leiðir til þess að örva ................ Og öllu má nú nafn gefa..
Eiginkona manns nokkurs var heldur dauf og LÖT til kynlífsins, eiginlega bara algjörlega áhugalaus, en maðurinn var náttúrulega eins og allir aðrir karlmenn ávallt hjól gLaður.En konan var eins og hún var, og lítið við því að gera.
En manninum datt þó í hug eitt laugardagskvöldið að elda frábæran mat og hafa gott vín með og höfðu hjónakornin það bara huggulegt fram eftir kvöldi og þegar þau fóru í háttinn og komin upp í þá leggst maðurinn þétt að sinni heittelskuðu og hvíslaði í eyra hennar:
Heldurðu að það sé einhver möguleiki fyrir Íþróttaálfinn
að fara íLatabænúna??
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.2.2008 | 12:22
Eru þeir að fatta þetta fyrst núna eftir 3ár hvað er að hjá framleiðendum bílanna?
Eru þeir að fatta þetta fyrst núna eftir 3ár hvað er að hjá framleiðendum bílanna?
Þetta er auðvitað með ólíkindum að í 3ár hafi menn ekið um á stórhættulegum bifreiðum með alla fjölskylduna skælbrosandi í góðri trú um að allt sé í góðu lagi.
Furðulegt að bifreiðaframleiðendur allmennt skuli ekki gera eitthvað í málunum fyrr en stórslys verða.
Nissan bifreiðar innkallaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.2.2008 | 13:08
Eldriborgara kynlíf getur verið svolítið brösótt en í senn greinilega mjög spennandi fyrir þá sem.........................................
Amma gamla fór í læknisskoðun sem gekk mjög vel. Eftir nokkra þögn leitar amma ráða og segir:
Við hjónum höfum ekki elskast í mörg ár. Hvað getur maður gert til að auka kynlöngun mannsins míns? - Hefurðu prufað Viagra spyr læknirinn.
-Hann vill ekki einu sinni taka inn verkjalyf þó hann sé með höfuðverk segir amma.
- Ég kann ráð við því segir læknirinn. Þú mylur Viagratöflurnar og setur út í kaffið hjá honum og hann tekur ekki eftir neinu.
Amma varð mjög glöð og yfirgaf læknastofuna í flýti. Viku síðar kemur hún aftur niðurbrotin og brúnaþung. Læknirinn spyr hvernig hafi gengið.
- Herfilega, segir amma, herfilega.
- Virkaði ekki ráðið eins og ég sagði þér, spyr læknirinn.
- Jú það virkaði mjög vel. Hann reif sig strax úr öllum fötum og tók mig á matborðinu. Besta kynlíf sem við höfum haft í 25 ár.
Hver er þá vandinn spyr læknirinn?
- Ég get aldrei aftur látið sjá mig á Hótel Holti, segir amma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2008 | 10:33
Stöðumælasekt verður að sektum og eftir því sem rifið er meiri kjaftur verður lagana vörður kolvitlaus og þetta endar í................
Stöðumælasekt verður að sektum og eftir því sem rifið er meiri kjaftur verður lagana vörður kolvitlaus og þetta endar í algjörum frasa á bílastæðinu og all varð vitlaust bæði löggan og ég og fl.
Ég fór í verslun um daginn. Ég var bara í 5 mínútur og þegar ég kom út var djöfilsins andskotans lögga að skrifa sektarmiða. Svo ég gekk að honum og sagði, "Heyrðu félagi, hvernig væri að gefa mönnum smá sjéns ?" Hann leit ekki við mér og hélt áfram að skrifa sektarmiðann, svo ég kallaði hann blýantsnagandi nasista. Hann leit snögg á mig og byrjaði á því að skrifa annann sektarmiða fyrir of slitin dekk undir bílnum. Þá kallaði ég hann rolluríðandi, hoppandi fáráðling. Hann lauk við að skrifa miða nr. 2 og setti hann á bílinn með fyrsta miðanum. Svo byrjaði hann að skrifa þriðja miðann !! Svona gekk þetta í um 20 mínútur, því meira sem ég svívirti hann, því fleiri sektarmiða skrifaði hann. Mér var í raun andskotans sama, en þið hefðuð átt að sjá svipinn á honum þegar ég fór yfir götuna að bílnum mínum, fór inn í hann og keyrði burt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Stelpan er fluggáfuð og hefur hingað til ekki látið seiga sér fyrir verkum.
Þetta er alveg ótrúlega gott hjá henni Björk hún fer ótroðnar slóðir að vanda og látur ekkert raska því eins og það að biðjast afsökunar eða því um líkt enda er þetta hreint sjálfsagt mál að styðja við bakið á aumingja fólkinu sem búið er að níðast áratugum saman.
Stöndum saman og viðurkennum sjálfstæði Kosovo..............
Hætt við tónleika vegna orða Bjarkar um Kosovo | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2008 | 14:56
Er kynlífið í molum? Þá er bara að velja rétta tegund og brosa svo framan í heiminn..........
Það er þó ekki bara spurningum að láta vaða í hvað sem er eins og þessi ágæti ólánsmaður gerði.Smokkar er jú nauðsynlegir og víst skiptir stærðin skip máli stelpur.
Kona ein sat á bar ásamt vinkonum sínum eftir vinnudag, þegar hrikalega myndarlegur og rosalega sexy ungur maður gekk þar inn. Hann var svo eftirtektarverður að konan gat með engu móti hætt að stara á hann.
Ungi maðurinn tók eftir athyglinni sem hann fékk frá konunni, gekk beint til hennar og sagði. Ég skal gera hvað sem er, HVAÐ SEM ER og hversu afbrigðilegt sem það er fyrir 2000 kr.með einu skilyrði.
Undrandi spurði konan hvað þetta skilyrði væri. Ungi maðurinn svaraði: Þú verður að segja mér hvað þú villt að ég geri í aðeins 3 orðum. Konan hugsaði tilboð hans um stund, byrjaði svo að telja peningana upp úr buddunni sinni og rétti unga manninum. Hún horfði djúpt í augu hans og hægt og rólega svaraði hún: ÞRÍFÐU HÚSIÐ MITT!!!!!!!!!!!!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.2.2008 | 11:34
AÐ FULLNÆGJA EIGINKONUNNI ER EKKERT GRÍN,EN SVONA GERA MENN ÞAÐ ÞEGAR ÞEIR ERU Í VANDÆÐUM.
Eldri maður giftist mun yngri konu og voru þau mjög ástfangin. Gallinn var þó sá að hversu mikið sem þau reyndu gat maðurinn ekki veitt spúsu sinni fullnægingu í rúminu. Ákváðu þau því að leita til læknis. Sá hafði ráð undir rifi hverju og eftir að hafa hlustað á söguna ráðlagði hann þeim að ráða til sín ungan og glæsilegan mann. Á meðan þið njótið ásta skuluð þið fá hann til þess að veifa handklæði yfir ykkur. Ímyndunarafl
konunnar ætti þannig að fara á fullt og hún ætti að fá sterka fullnægingu. Hjónin ákváðu að reyna þetta og réðu til sín fjallmyndarlegan og vöðvastæltan mann til að veifa handklæðinu. Þrátt fyrir það gekk henni ekkert betur að fá fullnægingu. Þau ákváðu því að tala aftur við lækninn. Hann ráðlagði þeim að skipta um hlutverk. Nú skuluð þið fá unga manninn til að fara í rúmið með konunni á meðan þú veifar handklæðinu, sagði hann við gamla manninn. Aftur ákváðu þau að fara að ráðum læknisins og fór ungi maðurinn í rúmið með konunni á meðan sá gamli sá um handklæðið. Ekki leið á löngu þar til konan fékk gríðarlegar fullnægingar, aftur og aftur svo herbergið lék á reiðiskjálfi. Þegar þau höfðu lokið sér af leit sá gamli brosandi á unga manninn.
Þarna sérðu, sagði hann sigri hrósandi. Það er SVONA sem maður á að veifa handklæði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)